HM-Uppbótartíminn: Loksins skoraði Hondúras Kristinn Páll Teitsson skrifar 23. júní 2014 13:30
Annarri umferð Heimsmeistaramótsins lauk í gærkvöldi með jafntefli Bandaríkjanna og Portúgals. Vísir mun gera upp umferðina á léttum nótum í dag og hefur tekið saman ýmsa tölfræðimola úr fyrstu umferðinni. Miroslav Klose jafnaði markamet Ronaldo þegar hann kom inná í leik Þýskalands og Gana. Klose var ekki lengi að stimpla sig inn en hann skoraði með sinni fyrstu snertingu í leiknum. Klose þurfti tuttugu leiki til þess að jafna met Ronaldo sem þurfti einum leik minna. Með marki sínu gegn Gana varð Klose aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu HM til þess að skora í fjórum mismunandi lokakeppnum. Komu mörk Klose í Suður-Kóreu og Japan, Þýskalandi, Suður Afríku og nú í Brasilíu. Aðeins Uwe Seeler og Pele höfðu leikið þetta áður. England datt út úr Heimsmeistaramótinu í riðlakeppninni í fyrsta sinn frá árinu 1958 eftir að Kosta Ríka lagði Ítalíu að velli á föstudaginn. Englendingar ætluðu sér langt á mótinu í ár en þurfa að pakka saman og halda heim eftir riðlakeppnina.Gary Neville reyndi að hugga sína menn eftir tapið gegn Úrúgvæ.Vísir/GettyNígería vann Bosníu 1-0 en þetta var fyrsti sigur Nígeríumanna á lokakeppni HM frá því 19. júní 1998. Mótið var haldið í Frakklandi það árið og kom sigurinn gegn Búlgaríu. Nígeríumönnum tókst ekki að vinna leik á HM árið 2002 né 2010 en þeir komust ekki í lokakeppnina þegar mótið var haldið í Þýskalandi árið 2006. Luis Suarez hefur skorað jafn mörg mörk í 7 leikjum fyrir Úrúgvæ og Cristiano Ronaldo og Lionel Messi hefur tekist að skora fyrir lönd sín í 22 leikjum á lokakeppni Heimsmeistaramótsins. Aðeins fjórir leikmenn Hondúras voru fæddir síðast þegar liðinu tókst síðast að skora á lokakeppni HM. Kom markið gegn Norður-Írlandi á Heimsmeistaramótinu á Spáni en Hondúras var í riðli með ásamt Norður Írlandi, Júgóslavíu og Spáni. Leikmenn Hondúras léku 510 mínútur án marks.Suarez var í skýjunum með mark sitt.Vísir/GettyDivock Origi varð yngsti markaskorari Belga á lokakeppni HM í sögunni þegar hann skoraði sigurmark Belgíu gegn Rússlandi á laugardaginn. Origi var nýorðinn 19 ára þegar hann tók hann við keflinu af Stéphane Demol. Mexíkó náði í fyrsta sinn að stöðva Brasilíu á lokakeppni HM. Fram að leik liðanna í annarri umferð höfðu liðin mæst alls þrisvar og höfðu Brasilíumenn haft betur í öll skiptin. Markatalan var 11-0 Brasilíu í hag. Í leik Írans og Argentínu áttu Íranir aðeins 114 sendingar sín á milli í öllum leiknum. Fimmtíu ár eru síðan lið var með færri sendingar í einum leik á lokakeppni Heimsmeistaramótsins
HM 2014 í Brasilíu Tengdar fréttir HM-Uppbótartíminn: Samningslausi markvörðurinn sló í gegn Annarri umferð Heimsmeistaramótsins lauk í gærkvöldi með jafntefli Bandaríkjanna og Portúgals. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Vísir mun gera upp umferðina á léttum nótum í dag. 23. júní 2014 11:45 HM-Uppbótartíminn: Myndasyrpa Ljósmyndarar eru á hverju strái á Heimsmeistaramótinu og hefur Vísir tekið saman skemmtilega myndasyrpu sem hægt er að sjá. 23. júní 2014 14:45 Mest lesið Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Sport Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Fótbolti Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Fótbolti Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum „Alfreð er æðsti klerkur þar“ Liðsfélagi Fanneyjar og Thelmu verður sú dýrasta í sögunni Maður dagsins á HM: „Ég er mættur aftur“ Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Forseti FIFA vill drykkjarhlé hér eftir á öllum heimsmeistaramótum Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Varnarjaxl og varamaður tryggðu sínum þjóðum nauma sigra í nótt Bandaríkin hjálpa Írönum fyrir næsta leik á HM „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Sjá meira
HM-Uppbótartíminn: Samningslausi markvörðurinn sló í gegn Annarri umferð Heimsmeistaramótsins lauk í gærkvöldi með jafntefli Bandaríkjanna og Portúgals. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Vísir mun gera upp umferðina á léttum nótum í dag. 23. júní 2014 11:45
HM-Uppbótartíminn: Myndasyrpa Ljósmyndarar eru á hverju strái á Heimsmeistaramótinu og hefur Vísir tekið saman skemmtilega myndasyrpu sem hægt er að sjá. 23. júní 2014 14:45