Treystir sér í forsetaembættið Bjarki Ármannsson skrifar 12. maí 2014 10:06
Marco Rubio, annar tveggja fulltrúa Florida-ríkis í öldungadeild Bandaríkjanna, segist í viðtali við ABC um helgina vera reiðubúinn í að takast á við embætti forseta landsins. Rubio hefur verið orðaður við frambjóðandastöðuna hjá Repúblikanaflokknum í næstu forsetakosningum þrátt fyrir að vera aðeins 42 ára gamall og á sínu fyrsta kjörtímabili í öldungadeildinni. „Ég er tilbúinn,“ sagði Rubio í viðtalinu. „Eitt sem margir átta sig kannski ekki á er að ég hef núna starfað í þágu almennings í að verða fjórtán ár. Svo tel ég að það skipti miklu máli að forsetinn hafi skýra hugmynd um hvert landið þarf að stefna og hvernig á að koma því þangað.“Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að fylgi Rubio hafi fallið talsvert undanfarna daga. Í viðtalinu spaugast hann að niðurstöðum könnunarinnar og segir að það virðist vera bölvun á því að birtast á forsíðu TIME-tímaritsins, líkt og hann gerði í febrúar síðastliðnum. „Ég hef litlar áhyggjur af skoðanakönnunum,“ sagði Rubio. „Ef að maður býður sig fram til forseta eyðir maður miklum tíma með almenningi að skýra stefnumál og þessar tölur geta þá hoppað bæði upp og niður.“ Aðspurður hvort hann sé hæfur frambjóðandi til forseta segir Rubio mikið af frambærilegu fólki í Repúblikanaflokknum. „Spurningin er: Sýn hvers mun flokkurinn okkar fylgja?“
Mest lesið Sinueldur við Elliðavatn Innlent Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Erlent Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Innlent Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Innlent Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Innlent „Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent Fleiri fréttir Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Sjá meira
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent