Fjölskylda dæmd til dauða í Pakistan Samúel Karl Ólason skrifar 19. nóvember 2014 14:58 Mohammad Iqbal eiginmaður konunnar heldur á mynd af henni. Vísir/AFP
Fjórir ættingjar óléttrar konu, sem þeir börðu til dauða fyrir utan dómshús í Pakistan vegna ósættis með hjónaband hennar, voru dæmdir til dauða í dag. Um er að ræða föður hennar, bróðir, frænda og annað skyldmenni. Fimmta skyldmennið var dæmt til tíu ára fangelsisvistar og allir þurfa að greiða þúsund dali í sekt hver, rúmlega 120 þúsund krónur. Bann er í gildi við aftökum í Pakistan, sem þýðir að þeir sem dæmdir eru til dauða þurfi í raun að sitja alla ævi í fangelsi. Lögmaður fjölskyldunnar segir að úrskurðinum verði áfrýjað, samkvæmt frétt á vef Huffington Post. Hin 25 ára Farzana Iqbal, hafði farið í dómshús í borginni Lahore til að leita skjóls undan fjölskyldu sinni. Þar fyrir utan var hún barin með múrsteinum af ættingjum sínum. Á meðan á árásinni stóð grátbað eiginmaður hennar nærstadda lögreglumenn um hjálp. Þeir komu henni ekki til hjálpar. Eiginmaður hennar Muhammed Iqbal, hefur viðurkennt að hafa myrt fyrrverandi eiginkonu sína til að giftast Farzana, en hann slapp við refsingu þar sem sonur hennar fyrirgaf honum. Nánasti ættingi myrtrar konu getur fyrirgefið morðingjum hennar samkvæmt lögum í Pakistan. Huffington Post segir að þar sem konur séu oft myrtar af nánustu ættingjum sínum þar í landi, hafi þúsundir sloppið við refsingu vegna slíkra morða. Samkvæmt mannréttindasamtökum í Pakistan fjölluðu fjölmiðlar um 869 svokölluð heiðursmorð í fyrra. Í raun er þessi tala líklega mun hærri.
Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Sjálfstæðisflokkur á flugi og ríkisstjórnin aldrei mælst með minna fylgi Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira