Umhverfis- og auðlindaráðuneyti segir grein New York Times fulla af rangfærslum Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. janúar 2014 22:55 Í grein New York Times segir að friðanir á hálendinu verði dregnar til baka og að fleiri virkjanir verði leyfðar. mynd/vilhelm
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið segir grein New York Times í gær um staði sem ferðafólk er hvatt til að heimsækja áður en það verði um seinan fulla af rangfærslum varðandi Þjórsárver og fyrirætlanir stjórnvalda um verndun og nýtingu á svæðinu. „Því er til dæmis haldið fram að Þjórsárver nái yfir 40 prósent landsins en hið rétta er að friðland Þjórsárvera nær yfir um 0,5 prósent alls landsins í dag,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Í grein New York Times segir að friðanir á hálendinu verði dregnar til baka og að fleiri virkjanir verði leyfðar. Haft er eftir Árna Finnssyni, formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands, að að engin leið verði að stöðva eyðileggingu á svæðinu. „Engin áform eru uppi um að aflétta þeirri friðun sem er í gildi. Þvert á móti stefnir umhverfis- og auðlindaráðherra að stækkun friðlandsins og gangi þau áform eftir verður það ríflega 1.500 ferkílómetrar að stærð eða um 1,5 prósent af flatarmáli Íslands. Er því ljóst að um verulega stækkun friðlandsins er að ræða. Sú fullyrðing New York Times að til standi að aflétta friðun Þjórsárvera í því skyni að virkja svæðið er því bæði þverstæðukennd og röng,“ segir í tilkynningunni frá ráðuneytinu.
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira