Fleiri smástirni lenda á jörðu niðri Freyr Bjarnason skrifar 26. apríl 2014 07:00 Smástirnið sem sveif yfir rússnesku borginni Chelybinsk í fyrra og lenti í ísilögðu vatni. Nordicphotos/AFP
Bandaríska vísindastofnunin B612 hefur birt myndband á heimasíðu sinni sem sýnir hvar smástirni hafa lent á jörðinni á undanförnum árum. Með myndbandinu vill hún sína fram á að aðskotahlutir úr geimnum eru algengari á jörðinni en flestir halda og hvetur stjórnvöld til að vera betur á varðbergi gagnvart þeim. Myndbandið byggir á gögnum samtakanna CTBTO, sem berjast gegn tilraunum með kjarnorkusprengjur. Á árunum 2000 til 2013 urðu skynjarar samtakanna varir við 26 stórar sprengingar á jörðinni. Engin þeirra var af völdum kjarnorkjusprengju heldur smástirna sem lentu á jörðinni. Krafturinn sem myndaðist við það nam allt frá frá einu kílótonni upp í sex hundruð. Til samanburðar var sprengjan sem lagði japönsku borgina Hiroshima í rúst 15 kílótonn. Sem betur fer eyðist megnið af öllu geimgrjóti í lofthjúpi jarðar, auk þess sem mikið af því sem kemst í gegn lendir í sjónum. Aðeins örfá tilfelli hafa komist í fréttirnar, nú síðast þegar stór loftsteinn sem var 20 metrar að þvermáli sveif yfir rússnesku borginni Chelybinsk í fyrra og lenti í ísilögðu vatni. Þrátt fyrir að sá atburður hafi verið erfið lífsreynsla fyrir þá sem bjuggu á svæðinu var steinninn lítill í sögulegu samhengi. Samkvæmt B612 gefa gögnin frá CTBTO í skyn að einu sinni á hverjum hundrað árum lendi á jörðinni margra megatonna smástirni á jörðinni, nógu stórt til að valda mikilli eyðileggingu í stórri borg. Frægt er þegar smástirni eða halastjarna, sem talið er að hafi verið um 45 kílómetrar í þvermál, lenti á óbyggðu svæði skammt frá ánni Tunguska í Rússlandi árið 1908. „Það er dálítið svipað með þetta og jarðskjálfta,“ segir Ed Lu, fyrrverandi geimfari og núverandi yfirmaður B612 í viðtali við BBC. „Í borgum þar sem mikil hætta er á þeim, Tókýó, Los Angeles og San Francisco, er vitað um líkurnar á stórum sjálftum með því að fylgjast með litlum skjálftum. Það er hægt að gera það sama með smástirni,“ sagði hann. „Lítið hefur verið vitað um þau sem hafa lent á jörðinni síðasta áratuginn fyrr en núna nýlega. Upplýsingarnar sýna okkur að smástirni sem lenda hér eru mun fleiri en við héldum.“ Til þess að meta betur líkurnar á því að svona stórir loftsteinar skelli á jörðu er B612 að smíða sjónaukann Sentinel. Hann verður tilbúinn til notkunar árið 2018 og kostar um 28 milljarða króna. Hann verður staðsettur á braut um jörðu og á að koma auga á þá stóru loftsteina sem þau tæki sem til staðar eru á jörðinni sjá ekki vegna sólarljóssins.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Fleiri fréttir Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Sjá meira