Rússland stefnir í efnahagskreppu Guðsteinn Bjarnason skrifar 3. desember 2014 07:00 Framkvæmdir við lagningu gasleiðslunnar voru kynntar með táknrænni viðhöfn fyrir rúmu ári. Nordicphotos/AFP
Rússar hafa ákveðið að hætta við lagningu gasleiðslu frá Rússlandi til Evrópu, suður fyrir Úkraínu. Bæði illvíg efnahagsvandræði og refsiaðgerðir Evrópusambandsins eiga sinn þátt í því. Vladimír Pútín forseti skýrði frá því á mánudagskvöld að líklega yrði hætt við þessi áform. Hann hafði varla sleppt orðinu þegar Alexej Miller, forstjóri rússneska orkufyrirtækisins Gasprom, sagði að þau hefðu nú verið blásin af. Rússar eru farnir að finna töluvert fyrir efnahagserfiðleikum, sem að stórum hluta virðist mega rekja annars vegar til almennrar verðlækkunar á olíu í heiminum, hins vegar til Úkraínustríðsins og refsiaðgerða Vesturlanda. Gengi rússnesku rúblunnar hefur lækkað um rúmlega 40 prósent síðan í janúar, og féll síðan hratt á mánudaginn. Olíuverð hefur lækkað um 25 prósent síðan í sumar, en útflutningur á olíu er meginuppistaðan í efnahagslífi Rússlands. Rússar sjálfir reikna með efnahagskreppu á næsta ári. Reyndar kemur gengisfall rúblunnar sér ekki að öllu leyti illa fyrir ríkissjóð Rússlands, því það mildar áhrifin af verðlækkun olíunnar. Rússar fá að vísu færri dali fyrir olíutunnuna, en í staðinn fá þeir fyrir hvern dal fleiri rúblur í ríkiskassann, og eiga þar með auðveldara með að standa undir reglulegum ríkisútgjöldum en annars hefði orðið. Þetta hefur þýska tímaritið Der Spiegel eftir Chris Wafer, sem er sérfræðingur í rússneskum efnahagsmálum. Framkvæmdum við olíuleiðsluna suður fyrir Úkraínu átti að ljúka árið 2016. Áformin voru kynnt árið 2012 og framkvæmdir hófust nú í sumar, en nú er ljóst að ekkert verður af þeim – í bili að minnsta kosti. Leiðslan átti að verða nærri 2.400 kílómetra löng, kosta 16 milljarða evra og flytja nægilegt gas handa 38 milljónum heimila í Evrópulöndum. Tilgangurinn var meðal annars sá að losna við Úkraínu sem millilið, vegna langvarandi ágreinings stjórnvalda þar við Rússa. Talið er að Rússar hafi þegar lagt jafnvirði nærri fjögurra milljarða evra í fjárfestinguna. Auk þess hafa fyrirtæki í löndunum, sem leiðslan átti að liggja um, þegar lagt í töluverða fjárfestingu í samvinnu við Gasprom. Gasleiðslan átti að liggja frá austurströnd Svartahafs og þaðan yfir hafið til Búlgaríu, áfram í gegnum Ungverjaland og Slóveníu allt til landamæraborgarinnar Tarviso á Ítalíu.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás Sjá meira