Tókst ekki að láta slönguna gleypa sig Atli Ísleifsson skrifar 8. desember 2014 14:34 Þátturinn olli áhorfendum talsverðum vonbrigðum.
Náttúrufræðingnum Paul Rosolie tókst ekki að láta risaslöngu gleypa sig en þátturinn Eaten Alive var sýndur á sjónvarpsstöðinni Discovery í gærkvöldi. Þættinum var beðið með mikilli eftirvæntingu en óhætt er að segja að hann hafi valdið áhorfendum miklum vonbrigðum. Risaslangan virtist ekki hafa nokkurn áhuga á að éta Rosolie líkt og hann hafði vonast til heldur reyndi þess í stað að vefja sig utan um hann. Rosolie neyddist að lokum til að kalla til aðstoðar þegar slangan gerði sig líklega til að handleggsbrjóta Rosolie. Í myndinni var sagt frá því hvernig Rosolie og samstarfsfélagar hans leituðu í regnskólum Perú að risaslöngu sem þeir að lokum fundu. Um var að ræða sex metra langt kvendýr og klæddist Rosolie sérstökum búningi og reyndi að fá slönguna til að éta sig. „Kraftur hennar var allur á handleggnum mínum. Ég fann hvernig blóðið fór úr handleggnum mínum á meðan ég fann hvernig handleggurinn tók að beygjast. Þegar þetta var komið svo langt að ég var farinn að finna að hann væri á leið af neyddist ég til að hætta við allt saman,“ sagði Rosolie. Margir vilja meina að hugmyndin hafi frá upphafi verið galin enda vilja risaslöngur jafnan tryggja að bráð þeirra sé hætt að anda áður en þeir gleypa hana. Risaslöngunni var sleppt eftir að upptökuliðið varð að hætta við tilraunina. Dýraverndunarsinnar hafa margir gagnrýnt Rosolie fyrir athæfið og hafa hótað að sniðganga Discovery. Sjálfur segist Rosolie hafa miklar áhyggjur af framtíð regnskóganna og að hann hafi ráðist í gerð myndarinnar til að koma boðskapnum á framfæri til sem flestra. Hér að neðan má sjá kynningarmyndband fyrir þáttinn sem sýndur var í gærkvöldi.
Tengdar fréttir Étinn lifandi af risaslöngu Paul Rosolie, náttúrufræðingur, verður étinn lifandi af risaslöngu fyrir þáttinn Eaten Alive á Discovery sjónvarpsstöðinni. 6. nóvember 2014 08:39 Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Innlent „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Innlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent „Við stöndum öll með starfsemi Samhjálpar“ Innlent Fleiri fréttir „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Sjá meira
Étinn lifandi af risaslöngu Paul Rosolie, náttúrufræðingur, verður étinn lifandi af risaslöngu fyrir þáttinn Eaten Alive á Discovery sjónvarpsstöðinni. 6. nóvember 2014 08:39