Myndir: Mannelskur kópur gleður íbúa og ferðamenn í Ólafsvík Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 6. september 2014 19:25 Kópurinn liggur í mestu makindum í höfninni við Ólafsvík Myndir/Þröstur Albertsson „
Ég hugsa að hann eigi eftir að vera þarna áfram. Honum líður vel þarna,“ segir Þröstur Albertsson, íbúi og ljósmyndari í Ólafsvík, en í höfn bæjarins hefur gullfallegur kópur vanið komur sínar. „Við urðum fyrst varir við hann um miðjan ágúst en svo hvarf hann. Síðan sá ég hann aftur í gærkvöldi þar sem hann sat á steini í höfninni.“ Þröstur tók myndirnar sem fylgja með fréttinni en kópurinn virtist ekkert hræddur og forðaðist ekki fólkið er það færði sig nær honum. Kópurinn virtist njóta athyglinnar sem hann fékk í dag en bæði ferðamenn og heimamenn hópuðust að honum og tóku myndir. „Það stoppaði ekki traffíkin hjá honum í dag,“ segir Þorsteinn og hlær. Kópurinn lá á steinhleðslu sem er umkringd vatni og því komst fólk ekki alveg að honum. „En þegar hann sást fyrst hérna þá leyfði hann fólki að klappa sér.“ Kópurinn virðist því mannelskur og er það kannski ekki að furða því makrílbátarnir hafa verið að gefa honum fisk í matinn. „Hann er líka búinn að stækka síðan ég sá hann síðast,“ fullyrðir Þorsteinn. „Hann er búinn að veita mörgum ánægju, bæði ferðamönnum og heimafólki.“ Kópar eru alla jafna á spena hjá móður sinni til fjögurra vikna aldurs en halda þá út í heiminn og sjá um sig sjálfir.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Sjá meira