Bauð meintum nauðgara dóttur sinnar í mat og drap hann Atli Ísleifsson skrifar 3. nóvember 2014 14:28 Maðurinn gaf sig fram við lögreglu um helgina. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AFP
36 ára karlmaður gaf sig fram við lögreglu á Indlandi um helgina eftir að hafa pyntað og að lokum myrt 45 ára mann sem hann sagði hafa nauðgað fjórtán ára dóttur hans. Að sögn lögreglu brenndi maðurinn kynfæri hins látna með hitatöngum og kyrkti hann að því loknu. Í miðlinum Indian Express kemur fram að atburðurinn hafi átt sér stað í Khajuri Khas hverfinu í Nýju-Delí. Talsmaður lögreglu segir að maðurinn hafi greint frá því að hinn látni, sem var birgðasali lyfja sem hann hafi sjálfur átt í viðskiptum við, hafi nauðgað dóttur hans fyrir um tveimur mánuðum. Hann hafi þó ekki tilkynnt málið til lögreglu af ótta við að mannorð dóttur hans yrði lagt í rúst. Lögregla greinir frá því að faðirinn hafi svo boðið lyfsalanum heim til sín undir því yfirskini að ræða einhver mál. „Hann bauð honum kvöldmat. Að máltíð lokinni réðst hann svo á lyfsalann og batt hann fastan við stól. Hann tók hitatangir og brenndi kynfæri mannsins áður en hann kyrkti hann. Hann mætti svo á lögreglustöð þar sem hann gaf sig fram.“ Maðurinn gaf mjög ítarlega skýrslu um hvernig hann hafi pyntað og drepið manninn, en lögregla fann lík lyfsalans á heimili mannsins. Lögregla segir að maðurinn hafi greint frá því að lyfsalinn hafi komið á heimili hans fyrir um tveimur mánuðum, á þeim tíma dags þegar hann var sjálfur í vinnunni. Dóttir hans hafi þá verið ein heima og á lyfsalinn að hafa nauðgað stúlkunni og hótað henni öllu illu ef hún myndi segja öðrum frá árásinni.Í grein Indian Express segir að stúlkan hafi þó sagt föður sínum frá árásinni sama dag, en að hann hafi hins vegar ekki leitað til lögreglu af ótta við að nágrannar og fjölskyldumeðlimir myndu kenna dóttur hans um atburðinn.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Sjá meira