Rússneskt herlið aftur í Úkraínu Atli Ísleifsson skrifar 12. nóvember 2014 14:24 Rúmlega fjögur þúsund manns hafa látið lífið í átökum úkraínska stjórnarhersins og aðskilnaðarsinna frá því í mars síðastliðinn. Vísir/AFP
Philip Breedlove, yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins, segir rússneskt herlið hafa haldið yfir landamærin til Úkraínu síðustu daga. Breedlove sagði að sést hefði til rússneskra skriðdreka, stórskotaliðs, loftvarnarkerfis og hermanna, þegar hann ræddi við fjölmiðla í Búlgaríu fyrr í dag. Rússnesk stjórnvöld hafa ítrekað hafnað fullyrðingum um að hafa sent rússneskt herlið inn í austurhluta Úkraínu til að styðja við bakið á herliði aðskilnaðarsinna sem eru á bandi Rússlandsstjórnar. Aðskilnaðarsinnar hafa þó greint frá því að þeir hafi notið liðsinnis „sjálfboðaliða“ frá Rússlandi. Mikil stórskotaliðsárás varð í úkraínsku borginni Donetsk í morgun, en þessi miðstöð iðnaðar í austurhluta Úkraínu, er að stærstum hluta á valdi aðskilnaðarsinna. Í frétt BBC segir að óljóst sé hvort úkraínski stjórnarherinn, herlið aðskilnaðarsinna eða fylkingarnar báðar hafi staðið fyrir árásunum. Þá hafa einnig borist fregnir af átökum nærri borginni Luhansk. Rúmlega fjögur þúsund manns hafa látið lífið í átökum úkraínska stjórnarhersins og aðskilnaðarsinna frá því í mars síðastliðinn. Samið var um vopnahlé í byrjun september en það hefur margoft verið brotið og óttast margir að það fari endanlega út um þúfur í kjölfar kosninga aðskilnaðarsinna í byrjun mánaðarins.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Sjá meira