Fótbolti

Olympiakos meistari í Grikklandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn Olympiakos fagna marki.
Leikmenn Olympiakos fagna marki. Vísir/Getty
Olympiakos varð í gærkvöldi Grikklandsmeistari fjórða árið í röð eftir 2-0 sigur á Panthrakikos á heimavelli sínum.

Leikurinn fór fram fyrir luktum dyrum en stuðningsmenn liðsins voru settir í bann vegna óeirða í leik gegn Panathinaikos á dögunum.

Olympiakos hefur haft mikla yfirburði í grísku deildinni og er nú 18 stigum á undan Atromitos þegar fimm umferðum er ólokið.

Olympiakos er sigursælasta lið í sögu gríska fótboltans, en alls hefur liðið unnið grísku deildina í 41 skipti.

Gríska stórveldið undirbýr sig nú fyrir seinni leikinn gegn Manchester United í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Olympiakos vann fyrri leikinn í Aþenu 2-0 og er því í góðri stöðu til að tryggja sér sæti í fjórðungsúrslitum Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn frá tímabilinu 1998-99.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×