Vilja halda aftur af Rússum án þess að egna þá Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2014 13:35 Undirbúningur fyrir fund leiðtoga NATO. Hér má sjá Eurofighter Typhoon orustuflugvél fyrir utan hótelið þar sem fundurinn fer fram. Vísir/AFP
Verkefni leiðtoga NATO, þegar þeir koma saman í Wales á morgun, verður að vernda mikilvæga meðlimi bandalagsins í Austur-Evrópu gegn Rússum. Án þess þó að ergja Rússa um of. NATO hefur reynt að fá Rússland til að ganga í bandalagið í tvo áratugi, en nú virðist sem samband NATO og Rússlands hafi ekki verið verra frá tímum Kalda stríðsins. Fjallað er um samskipti NATO og Rússlands í grein sem AP fréttaveitan birti í morgun. NATO tilkynnti á mánudaginn að til stæði að stofna herdeild sem ætlað væri að bregðast við ógnum í Austur-Evrópu á 48 klukkutímum. Að safna ætti birgðum, eins og eldsneyti og skotfærum í löndum eins og Póllandi, en Pólverjar hafa lengi beðið um aukna vernd NATO. Háttsettur meðlimur rússneska hersins tilkynnti svo í gær að Rússland myndi endurskoða viðbragðsáætlanir sínar með tilliti til „breyttra hernaðarógna“. Vesturveldin hafa nú í nokkra mánuði sakað Rússa um að styðja við bakið á aðskilnaðarsinnum í Austur-Úkraínu, eftir að Rússlandi hernam og innlimaði Krímskaga. Þrátt fyrir neitanir yfirvalda í Moskvu telur NATO að minnst þúsund rússneskir hermenn taki beinan þátt í átökunum í Úkraíniu og að þeir hafi hjálpað aðskilnaðarsinnum við að snúa taflinu við gegn stjórnarhernum. Æðsti herforingi NATO í Evrópu sagði í viðtali við þýskt dagblað í síðasta mánuði að ef Rússland myndi beita svipuðum aðferðum í aðildarríki NATO, og nefndi hann Lettland sem dæmi þar sem um 27 prósent íbúa telja sig vera Rússa. Þá væru litið á það sem árás á öll aðildarríki bandalagsins samkvæmt fimmtu grein stofnsamnings NATO frá 1949. Þannig séu Bandaríkin til dæmis skuldbundin til að vernda Riga, alveg eins og Berlín.Hér má sjá samanburð á hernaðargetu NATO og Rússlands.Vísir/Graphic NewsTelja vörn NATO ekki nægjanlega Þá bendir AP á skýrslu sem varnarmálanefnd neðri deildar breska þingsins birti í júlí. Þar segir að NATO sé sérstaklega óundirbúið fyrir þeirri nýju tegund hernaðar sem Rússar hafa breytt í Úkraínu. Þar sem ýtt sé undir óöld innan annarra landa. Með áróðri, samfélagsmiðlum og notkun hermanna í dulargervi eða án nokkurra merkinga. Háttsettur embættismaður innan NATO sagði AP að viðbrögð gegn álíka aðgerðum Rússa og þeir hafi beitt í Úkraínu, sé meðal þess sem rætt verði í Wales á morgun. Þrátt fyrir að leiðtogar bandalagsins hafi undanfarið lofað meðlimum í Austur-Evrópu aukinni vernd, segir AP að þeir vilji ekki skaprauna Vladimir Putin og hershöfðingjum Rússlands. Líkurnar á því að þessar þjóðir fái þá vernd sem þeir hafa beðið um eru ekki miklar. Viðmælandi AP, Jorge Benitez sem er sérfræðingur í málefnum NATO, segir að ekki muni koma til þess aftur að vesturveldin staðsetji hundruði þúsundir hermanna og skriðdreka í löndunum eins og gert var í Vestur-Þýskalandi á tímum Kalda stríðsins. Þó stæði til að fjölga heræfingum í löndunum, en NAO meðlimum í Austur-Evrópu þætti það ekki nóg.
Tengdar fréttir Úkraína vill inn í NATO Framkvæmdastjóri NATO sakar Rússa um hrein og klár brot gegn fullveldi Úkraínu og að stunda hernaðaraðgerðir til stuðnings aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu. 29. ágúst 2014 18:23 Íhuga stofnun viðbragðssveitar gegn Rússum Leiðtogar NATO munu seinna í vikunni taka ákvörðun um hvort stofna eigi sérstaka viðbragðssveit og safna herbirgðum í austanverðri Evrópu. 1. september 2014 15:01 Obama í heimsókn til Eystrasalts Þar mun forestinn ræða við leiðtoga ríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháen. 3. september 2014 08:19 Eistar vilja varanlega herstöð NATO til sín Forseti Eistlands vill að brugðist sé við þeirri ógn sem stafar af Rússum með því að koma upp varanlegri herstöð í Eistlandi. 2. september 2014 22:11 Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut Innlent Fleiri fréttir Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Sjá meira
Úkraína vill inn í NATO Framkvæmdastjóri NATO sakar Rússa um hrein og klár brot gegn fullveldi Úkraínu og að stunda hernaðaraðgerðir til stuðnings aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu. 29. ágúst 2014 18:23
Íhuga stofnun viðbragðssveitar gegn Rússum Leiðtogar NATO munu seinna í vikunni taka ákvörðun um hvort stofna eigi sérstaka viðbragðssveit og safna herbirgðum í austanverðri Evrópu. 1. september 2014 15:01
Obama í heimsókn til Eystrasalts Þar mun forestinn ræða við leiðtoga ríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháen. 3. september 2014 08:19
Eistar vilja varanlega herstöð NATO til sín Forseti Eistlands vill að brugðist sé við þeirri ógn sem stafar af Rússum með því að koma upp varanlegri herstöð í Eistlandi. 2. september 2014 22:11