Eistar vilja varanlega herstöð NATO til sín Atli Ísleifsson skrifar 2. september 2014 22:11 Toomas Hendrik Ilves Eistlandsforseti hefur miklar áhyggjur af þróun mála í austurhluta álfunnar. Vísir/AFP
Forseti Eistlands vill að NATO komi sér upp varanlegri herstöð í Eistlandi til að bregðast við þeirri ógn sem stafar af Rússlandi. Toomas Hendrik Ilves lét orðin í samtali við Ekot fyrr í kvöld. Ilves hyggst leggja fram kröfuna þegar hann fundar með Barack Obama Bandaríkjaforseta í eistnesku höfuðborginni Tallinn á morgun. „Við getum ekki verið með með tveggja laga NATO,“ segir Ilves og vísar þar til samkomulags frá 1997 þar sem aðildarríki NATO hétu því að koma ekki kjarnavopnum fyrir í Eistlandi og öðrum þeim ríkjum sem þá gerðust aðilar að NATO. Samkomulagið hefur í raun falið í sér stopp við að koma upp varanlegum herstöðvum í nýrri aðildarríkjum. Forsetinn segir þó samkomulagið um varanlegar herstöðvar einungis eiga við um það öryggisástand sem menn gátu ímyndað sér fyrir sautján árum síðan. „Enginn gat ímyndað sér innrás, innlimun eða nokkuð af því sem við verðum vitni af í dag. Ég lít því á slíkt rök sem bæði fræðilega og lagalega kjánaleg.“ Andstaða við hugmyndir um varanlegri herstöð NATO í Eystrasaltríkjunum hefur komið upp síðustu vikur. Síðast fyrir tveimur vikum hafnaði Angela Merkel Þýskalandskanslari öllu slíku og sagði að slíkt myndi fela í sér brot á samkomulagið við Rússa. Málið verður vafalaust til umræðu á leiðtogafundi aðildarríkja NATO sem fram fer í velsku borginni Cardiff síðar í vikunni.
Tengdar fréttir Úkraína vill inn í NATO Framkvæmdastjóri NATO sakar Rússa um hrein og klár brot gegn fullveldi Úkraínu og að stunda hernaðaraðgerðir til stuðnings aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu. 29. ágúst 2014 18:23 Íhuga stofnun viðbragðssveitar gegn Rússum Leiðtogar NATO munu seinna í vikunni taka ákvörðun um hvort stofna eigi sérstaka viðbragðssveit og safna herbirgðum í austanverðri Evrópu. 1. september 2014 15:01 Mótfallinn auknum hernaði í Úkraínu Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur vesturveldin til að leggja áherslu á pólitískar viðræður deiluaðila í austur-Úkraínu. 2. september 2014 11:17 Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Erlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Fleiri fréttir Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Sjá meira
Úkraína vill inn í NATO Framkvæmdastjóri NATO sakar Rússa um hrein og klár brot gegn fullveldi Úkraínu og að stunda hernaðaraðgerðir til stuðnings aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu. 29. ágúst 2014 18:23
Íhuga stofnun viðbragðssveitar gegn Rússum Leiðtogar NATO munu seinna í vikunni taka ákvörðun um hvort stofna eigi sérstaka viðbragðssveit og safna herbirgðum í austanverðri Evrópu. 1. september 2014 15:01
Mótfallinn auknum hernaði í Úkraínu Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur vesturveldin til að leggja áherslu á pólitískar viðræður deiluaðila í austur-Úkraínu. 2. september 2014 11:17