Lífstíðarfangelsi fyrir samkynhneigð í Úganda Elimar Hauksson skrifar 10. janúar 2014 11:30 Árið 2010 lak úganska blaðið Rolling Stone myndum af 100 samkynhneigðum einstaklingum í Úganda ásamt heimilisföngum þeirra. "Hengið þá," sagði einnig á forsíðu blaðsins. Mynd/Amnesty
Íslandsdeild Amnesty International stendur fyrir undirskriftasöfnun á netákallssíðu sinni þar sem skorað er á forseta Úganda, Yoweri Museveni að synja frumvarpi staðfestingar sem kveður á um lífstíðarfangelsi fyrir samkynhneigð í landinu. Þann 20. desember síðastliðinn samþykkti úganska þingið frumvarp sem þyngir refsingar við samkynhneigð. Lífstíðarfangelsi getur legið við samkynhneigð samkvæmt frumvarpinu en úgönsk hegningarlög banna nú þegar „holdlegt samræði gegn lögmálum náttúrunnar“. Frumvarpið gengur lengra en núgildandi hegningarlög gera ráð fyrir með því að banna sérstaklega „grófa samkynhneigð“ með möguleika á lífstíðarfangelsi. Samkvæmt frumvarpinu er einnig refsivert að „styðja við“ samkynhneigð eða ýta undir hana og í tilkynningu Amnesty International segir að í sumum kringumstæðum geti samkynhneigðir þurft að sæta þvinguðum alnæmisprófum. Frumvarpið er nú í höndum forseta landsins sem getur synjað því staðfestingar eða beiðst þess að þingið endurskoði einstök ákvæði. Amnesty telur að þrátt fyrir breytingar, þá yrði frumvarpið augljós aðför að réttindum hinsegin fólks í Úganda, sem þegar þurfi að þola fordæmingu af hálfu samfélagsins. Hægt er hægt er að leggja málefninu lið og taka þátt í undirskriftasöfnun gegn frumvarpinu á síðu Amnesty.
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Innlent Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Innlent Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Innlent Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Innlent Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Sjá meira