Kaþólskur prestur í Noregi dæmdur fyrir samræði við 15 ára stúlku Þorgils Jónsson skrifar 10. janúar 2014 13:03 Brot prestsins áttu sér stað í Bergen í Noregi. Mynd/Björgólfur Hávarðsson
Kaþólskur prestur á fertugsaldri var í gær dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fimm skilorðsbundna, fyrir dómi í Bergen í Noregi, fyrir að hafa haft mök við fimmtán ára stúlku. Í frétt á vef Aftenposten segir að skilorðsbinding refsingarinnar sé óhefðbundin og presturinn hafi því sloppið betur en margir fyrir sinn glæp. Presturinn átti í kynferðislegu sambandi við stúlkuna um nokkurra vikna skeið í sumar, en samband þeirra komst upp þegar stúlkan sagði frá því við skriftir. Brotin áttu sér stað á bústað pretsins þar sem hann var við störf í Bergen, en hann þjónaði við kirkju í Osló. Þar var hann virkur í ungmennastarfi og sá meðal annars um fermingarfræðslu. Kirkjan kærði málið til lögreglu, en fram kom í dómnum að hvorki stúlkan né foreldrar hennar hafi viljað kæra.„Mér finnst hann ekki hafa gert neitt rangt og þess vegna á ekki að dæma hann", sagði stúlkan fyrir dómi á þriðjudag. Presturinn sagðist sjálfur afar leiður yfir því sem hafði gerst. „En um leið er hún ást lífs míns, ég vissi ekki að löglegur samræðisaldur í Noregi væri sextán ár. Í mínu heimalandi, Þýskalandi, er kveðið á um fjórtán ár og það sama á við um Austurríki þar sem ég bjó í mörg ár." Saksóknari krafðist þess að einungis einn mánuður yrði skilorðsbundinn, en varð ekki að þeirri ósk. Í dóminum er tekið fram að sambandið milli prestsins og stúlkunnar hafi verið ástarsamband. Ekki sé að sjá að presturinn hafi notfært sér aldursmun eða stöðu sína. Hann hafi ekki einn haft frumkvæðið að sambandinu og ekkert bendi til þess að um nauðung hafi verið að ræða. Fleira var metið prestinum til refsilækkunar, meðal annars að hann hafi gengist við öllu, enda eru vitnisburðir hans og stúlkunnar einu sönnunargögnin í málinu, auk þess sem hann hafi mist stöðu sína vegna málsins og fái vart vinnu sem prestur eftir þetta.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Sjá meira