Nauðgað samkvæmt úrskurði öldungaráðs Guðsteinn Bjarnason skrifar 23. janúar 2014 10:15 Mótmæli gegn nauðgunum hafa verið tíð á Indlandi undanfarið. Vísir/AP
Þrettán menn hafa verið handteknir Vestur-Bengal á Indlandi í tengslum við hópnauðgun, sem átti sér stað á mánudaginn var. Að sögn lögreglunnar var konunni nauðgað samkvæmt úrskurði frá öldungaráði þorpsins, sem hún býr í. Konan er tvítug og liggur nú á sjúkrahúsi þungt haldin eftir ofbeldið. Hún sagði lögreglu frá því að öldungaráðið í þorpinu hafi sektað hana fyrir að hafa átt í ástarsambandi við mann, sem aðhyllist önnur trúarbrögð. Þegar fjölskylda hennar sagðist vera of fátæk til að geta greitt sektina, þá tók öldungaráðið ákvörðun um að í staðinn ætti að refsa henni með hópnauðgun. Undanfarið ár hafa fréttir af hópnauðgunum vakið hörð viðbrögð á Indlandi. Stjórnvöld hafa að nokkru brugðist við með því að setja strangari lög. Meðal annars hefur refsing verið þyngt og málsmeðferð í nauðgunarmálum hraðað. Þetta mál er frábrugðið hinum að því leyti að ráðist er á konuna samkvæmt úrskurði opinbers valds. AP fréttastofan skýrir frá þessu, en í skeyti frá henni kemur einnig fram að öldungaráð skera iðulega úr um ýmis síðferðismál í þorpum sums staðar á Indlandi. Úrskurðir þeirra hafi ekki lagalega bindandi gildi, en eigi að síður mikil áhrif í þorpunum.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira