Erlent

Drónaflug yfir orkuverum skelfir Frakka

Frakkland og AP / Óli Kristján Ármannsson skrifa
Belleville-sur-Loire-kjarnorkuverið. Litlum flygildum hefur ítrekað verið flogið yfir kjarnorkuver í Frakklandi.
Belleville-sur-Loire-kjarnorkuverið. Litlum flygildum hefur ítrekað verið flogið yfir kjarnorkuver í Frakklandi. Nordicphotos/AFP
Fjöldi tilvika óútskýrðs og ólöglegs yfirflugs dróna (ómannaðra smáflugvéla) yfir tugum kjarnorkuvera í Frakklandi hafa hrundið af stað sérstakri rannsókn yfirvalda öryggis- og varnarmála þar í landi.

Vaknað hafa spurningar um öryggismál, þar sem Frakkar reiða sig mestanpart á kjarnorku við orkuframleiðslu.

Umhverfisverndarsinnar hafa sagt þróun mála vekja ugg. Frá því í október hafa yfirvöld talið að minnsta kosti 15 tilvik þar sem flogið hefur verið yfir kjarnorkuver á fimm mismunandi stöðum í landinu, að því er fram kom í máli fulltrúa stjórnvalda í gær.

Ekki er vitað hver eða hverjir standa á bak við yfirflugið eða hvað liggur þar að baki. Ýmsar hugmyndir hafa þó verið viðraðar í þeim efnum, svo sem að þetta gæti verið könnunarflug hryðjuverkamanna, iðnaðarnjósnir, aðgerðir stjórnmála- eða umhverfisverndarhreyfinga, eða jafnvel að hér gæti verið um ólöglegt grín spéfugla að ræða.

Segolene Royal, ráðherra umhverfis- og orkumála í Frakklandi, segir engar vísbendingar um hver kunni að standa á bak við drónaflugið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×