Vígasveitir pynta börn Guðsteinn Bjarnason skrifar 5. nóvember 2014 07:00 Kúrdabærinn Kobani í Sýrlandi, rétt sunnan landamæra Tyrklands, hefur verið í hers höndum vikum saman. Fámennur hópur heimamanna hefur varist árásum vígasveitanna. fréttablaðið/AP
Vígasveitir Íslamska ríkisins hafa pyntað og misþyrmt meira en 150 Kúrdabörnum sem handtekin voru fyrr á árinu skammt frá landamærabænum Kobani. Þau voru meðal annars barin með rafmagnssnúrum og vatnsslöngum. Þetta fullyrða alþjóðlegu mannréttindasamtökin Human Rights Watch, sem hafa rætt við nokkur þeirra barna sem rænt var í vor þar sem þau voru á heimleið til Kobani eftir að hafa verið í skólaprófum í borginni Aleppo. Samtökin segja um fimmtíu þeirra hafa sloppið fljótlega úr haldi vígamannanna, en hinum hafi verið sleppt smám saman. Þau síðustu fengu frelsið í lok október. „Allt frá byrjun uppreisnarinnar í Sýrlandi hafa börn mátt þola þann hrylling sem fylgir handtöku og pyntingum, fyrst af hálfu stjórnar Assads og nú af hálfu Íslamska ríkisins,“ segir Fred Abrahams, talsmaður Human Rights Watch. „Þessar sannanir um pyntingar og misþyrmingar af hálfu Íslamska ríkisins sýna okkur hvers vegna enginn ætti að styðja glæpaverk þeirra.“Börn í flóttamannabúðum Kúrda í Tyrklandi, rétt handan landamæranna við Kobani.fréttablaðið/APUndanfarið ár hafa vígamennirnir handtekið hundruð Kúrda í Sýrlandi og jafnframt lagt kapp á að ná á sitt vald Kúrdasvæðunum í norðaustanverðum hluta Sýrlands. Á þriðjudaginn var svo skýrt frá því að tugir þessara Kúrda hafi verið látnir lausir, en engin skýring fylgdi hvort það hafi verið liður í einhverju samkomulagi við Kúrda. Hörð átök geisa enn í Kobani, þar sem vígasveitir íslamista hafa mætt harðri mótspyrnu frá íbúum bæjarins þótt flestir hafi þeir reyndar flúið átökin. Þeir sem eftir eru tilheyra flestir þjóðvarnarsveitum sýrlenskra Kúrda, sem ganga undir skammstöfuninni YPG og hafa jafnan snúist til varnar þegar átökin í landinu hafa borist inn á Kúrdasvæðin. Íbúarnir hafa nýlega fengið liðsinni frá Peshmarga-hersveitum íraskra Kúrda, sem tyrknesk stjórnvöld hafa leyft að fara yfir landamærin til Sýrlands. Málið er umdeilt í Tyrklandi og hefur yfirstjórn hersins harðlega mótmælt þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leyfa vopnuðum Kúrdum að fara um tyrkneskt svæði á leið sinni frá Írak til Sýrlands. Tyrkneski herinn hefur áratugum saman varið kröftum sínum að stórum hluta í baráttu gegn sjálfstæðissinnuðum Kúrdum í suðaustanverðu Tyrklandi.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Sjá meira