Repúblikanar með yfirhöndina í báðum deildum 5. nóvember 2014 07:02 Repúblikanar fagna í gærkvöldi. VÍSIR/AFP
Repúblikanar náðu meirihluta í kosningum til öldungadeildar Bandaríkjaþings sem fram fóru í gær og þeir juku einnig við meirihluta sinn sem þeir höfðu fyrir í fulltrúadeildinni. Flokkurinn vann sæti í Arkansas, Colorado, Iowa, Montana, Norður Karólínu, Suður Dakóta og í Vestur Virginíu og búist er við frekari fylgisaukningu þegar talið hefur verið upp úr öllum kjörkössum, síðar í dag. Öldungadeildarþingmaðurinn og Repúblikaninn Mitch McConnell er talinn líklegastur til að taka við embætti forseta öldungadeildarinnar. Hann sagði niðurstöður kosninganna vera merki um Bandaríkjamenn hafi kosið gegn „stjórn sem þeir geta ekki treyst lengur“. Kosningarnar eru taldar afhroð fyrir Demókrataflokkinn og munu þær gera róðurinn mun þyngri fyrir Barack Obama forseta, sem er Demókrati, en hann á nú tvö ár eftir að síðara kjörtímabili sínu. Kosið var um þriðjung þingsæta í öldungadeild þingsins, öll þingsæti fulltrúadeildar, 36 ríkisstjóra, auk ótal embætta innan einstakra ríkja og sýslna.Í frétt BBC kemur fram að Repúblikanar hafi einnig bætt hressilega við sig í fulltrúadeildinni og hafa ekki verið sterkari þar síðan á dögum Truman forseta upp úr seinna stríði. Samkvæmt nýjustu tölum eiga Repúblikanar nú 237 fulltrúa í fulltrúadeildinni, en Demókratar 162. Repúblikanar einblíndu í kosningabaráttunni á óánægju kjósenda með Obama forseta og lýstu kosningunum sem þjóðaratkvæðagreiðslu um störf forsetans. Sigur Repúblikana mun hafa áhrif á getu Obama til að skipa nýja alríkisdómara, ráðherra og háttsetta embættismenn. Enn á eftir að klára talningu í nokkrum ríkjum en ljóst er að Repúblikanar unnu auðveldlega þau sex þingsæti sem þurfti til að ná meirihluta í öldungadeildinni af Demókrötum. Sem stendur skipa Repúblikanar 52 þingsæti og er búist við að þeir nái fleirum áður en talningu lýkur. 100 þingmenn eiga sæti í öldungadeild þingsins. Nýtt þing tekur til starfa í ársbyrjun en þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 2006 þar sem Repúblikanar hafa meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Sjá meira