Erlent

Þjóðverjar krefjast gagna

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Nýjar tölur frá Facebook sýna að þýsk stjórnvöld biðja um meiri upplýsingar um notkun þegna sinna á síðunni miðað við fjölda notenda en nokkur önnur þjóð.

Þrátt fyrir orðspor landsins um að vernda frelsi á internetinu kemur í ljós að Þjóðverjar sendu inn 2.537 beiðnir um notendaupplýsingar á fyrri helmingi ársins 2014, sem gerir 115 beiðnir á hverja milljón notenda.

Ítalía, Bandaríkin og Frakkland fylgja fast á hæla Þýskalandi, þar sem hvert og eitt land sendi inn 100 beiðnir á hverja milljón notendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×