Fótbolti

Átti lélegan leik og flúði land | Myndband

Lucas Birnstingl í essinu sínu.
Lucas Birnstingl í essinu sínu.
Það eiga allir misgóða daga í vinnunni. Markvörður í skoska boltanum gat þó ekki lifað með því að hafa átt hræðilegan leik.

Sá heitir Lucas Birnstingl og er markvörður hjá skoska 4. deildarliðinu Montrose. Hann átti vægast sagt skelfilegan dag í markinu í nágrannaslag.

Ekki bara fékk hann á sig mark sem markvörður hins liðsins skoraði með því að skjóta yfir allan völlinn heldur fékk hann einnig að líta rauða spjaldið. Lið hans tapaði leiknum 5-1.

Svo reiður varð Birnstingl að hann pakkaði niður í tösku eftir leik og flaug til Kanada en hann er þaðan.

Hann sá að sér daginn eftir, bað félagið afsökunar og bauðst til þess að koma aftur. Það boð var afþakkað pent.

Markið skrautlega má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×