Erlent

Rekinn heim fyrir að neita að hylla þjóðfánann

Ingvar Haraldsson skrifar
Mason Michalec var rekinn heim fyrir að óhlýðnast fyrirmælum kennara.
Mason Michalec var rekinn heim fyrir að óhlýðnast fyrirmælum kennara. VÍSIR/SKJÁskot
Mason Michalec, fimmtán ára gamall gagnfræðiskólanemi í Huston í Texas, var vísað úr skóla í tvo daga vegna þess að hann neitaði að fara með hollustueiðinn eða Pledge of Allegance eins og það heitir á frummálinu. Hollustueiðurinn fellst í að þú sverjir hollustu við þjóðfánann og sameinuð Bandaríki en það er gert reglulega í skólanum.

Michalec segist hafa verið látinn flytja eiðinn frá því hann var í leikskóla. Fyrr á þessu ári fékk hann nóg og ákvað að sitja og þegja á meðan bekkjarfélagar hans stæðu og færu með hollustueiðinn. Þessi þöglu mótmæli hans gengu vandræðalaust þar til í vikunni þegar nýr kennari sá um athöfnina.

„Kennarinn sagði mér að þetta væri kennslustofan hans og að það væri vilji skólastjórans að nemendur færu með hollustueiðinn.“ segir Michalec.

Eftir þessa uppákomu var Michalec sendur heim í tvo daga. Michalec fékk einnig bréf þess efnis að hann yrði sendur heima í einn dag í hvert skipti í viðbót sem hann myndi neita að flytja hollustueiðinn.

Michalec segist ætla að halda sínu striki. Hann er ekki sáttur hvernig yfirvöld misnoti aðstöðu aðstöðu sína. Hann nefnir sérstaklega netnjósnir Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna (NSA) og lög um netöryggi.

Lögfræðingar segja vafa liggja á því hvort þessi ákvörðun skólastjórans standist fyrsta breytingarákvæði bandarísku stjórnarskrárinnar sem kveður á um tjáningarfrelsi. New York Daily greinir frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×