Slær Brasilía Chile enn og aftur út? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2014 14:10 Úr leik Brasilíu og Chile á HM 1998. Vísir/Getty
Brasilía og Chile mætast í 16-liða úrslitum á HM í fótbolta í Belo Horizonte klukkan 16:00 í dag. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leiðir þessara tveggja liða liggja saman á HM, en Brasilía hefur slegið Chile úr leik í þau þrjú skipti sem síðarnefnda liðið hefur komist í útsláttarkeppni á HM. Á HM 1962 í Chile vann Brasilía heimamenn í undanúrslitum með fjórum mörkum gegn tveimur. Garrincha og Vavá skoruðu tvö mörk hvor fyrir Brasilíu en Jorge Toro og Leonel Sánchez mörk Chile sem vann Júgóslavíu 1-0 í leiknum um þriðja sætið þremur dögum síðar. Brasilíumenn vörðu hins vegar heimsmeistaratitil sinn með því að sigra Tékkóslóvakíu 3-1 í úrslitaleik á Estadio Nacional í Santíagó á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga. Liðin mættust næst 36 árum seinna í 16-liða úrslitum á HM í Frakklandi þar sem Brasilíumenn höfðu betur, 4-1. César Sampaio og Ronaldo skoruðu tvö mörk hvor fyrir Brasilíu en Marcelo Salas skoraði eina mark Chile. Brasilía komst alla leið í úrslitaleikinn þar sem liðið tapaði 3-0 fyrir heimamönnum. Brasilía og Chile mættust svo aftur í 16-liða úrslitum á HM í Suður-Afríku fyrir fjórum árum. Leikið var á Ellis Park í Jóhannesarborg og fóru Brasilíumenn með sigur af hólmi, 3-0. Juan, Luís Fabiano og Robinho skoruðu mörkin fyrir Brasilíu sem féll úr leik í næstu umferð fyrir Hollandi. Aðeins fimm leikmenn (Júlío César, Maicon, Dani Alves, Ramires og Thiago Silva) eru enn í brasilíska hópnum frá því fyrir fjórum árum á meðan 11 af 23 leikmönnum í chileska hópnum voru líka í hópnum 2010. Sé litið á alla innbyrðisleiki þjóðanna, þá standa Brasilíumenn mun betur að vígi. Alls hafa liðin leikið 68 leiki; Brasilía hefur unnið 48, 13 leikjum hefur lyktað með jafntefli, en Chilemenn hafa aðeins unnið sjö.Fylgst verður með leiknum á eftir í beinni textalýsingu hér á Vísi.
HM 2014 í Brasilíu Tengdar fréttir Zamorano: Stuðningsmaður liðsins númer eitt Ivan Zamorano, fyrrum framherji Real Madrid, Internazionale og landsliðs Chile, var í viðtali við heimasíðu FIFA, Aþjóðaknattspyrnusambandsins, í gær þar sem hann lofaði þá kynslóð sem nú ber uppi landslið Chile. 28. júní 2014 12:17 Háspenna, lífshætta í Belo Horizonte | Myndir Brasilía varð fyrsta liðið til tryggja sér sæti í átta-liða úrslitum á HM eftir sigur á Chile í vítaspyrnukeppni í Belo Horizonte í dag. Staðan var jöfn, 1-1, að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu. Staðan var einnig jöfn, 2-2, fyrir síðustu umferð vítaspyrnukeppninnar. 28. júní 2014 00:01 Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Fótbolti Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Fleiri fréttir Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Daníel Guðjohnsen fékk tækifæri eftir mikla óvissu Elche - Real Sociedad | Orri í eldlínunni Lið Elíasar bjargaði stigi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjá meira
Zamorano: Stuðningsmaður liðsins númer eitt Ivan Zamorano, fyrrum framherji Real Madrid, Internazionale og landsliðs Chile, var í viðtali við heimasíðu FIFA, Aþjóðaknattspyrnusambandsins, í gær þar sem hann lofaði þá kynslóð sem nú ber uppi landslið Chile. 28. júní 2014 12:17
Háspenna, lífshætta í Belo Horizonte | Myndir Brasilía varð fyrsta liðið til tryggja sér sæti í átta-liða úrslitum á HM eftir sigur á Chile í vítaspyrnukeppni í Belo Horizonte í dag. Staðan var jöfn, 1-1, að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu. Staðan var einnig jöfn, 2-2, fyrir síðustu umferð vítaspyrnukeppninnar. 28. júní 2014 00:01