Khodorkovsky ræður vesturlöndum frá því að beita Rússa þvingunum 22. maí 2014 08:25
Rússneski andófsmaðurinn Mikhail Khodorkovsky, sem eitt sinn var á meðal ríkari mönnum heims, áður en hann féll í ónáð hjá Pútín forseta, hvetur Vesturlönd til að láta af viðskiptaþvingunum vegna deilunnar um Úkraínu. Khohodorkovsky var nýlega sleppt úr fangelsi eftir að hafa setið af sér tíu ára dóm. Hann er nú í útlegð í Sviss og í viðtali við bresku fréttastofuna BBC segir hann að Vesturlönd séu að gera mistök með því að beita viðskiptaþvingunum gegn Rússum. Þær aðgerðir komi engum til góða, nema þjóðernissinnum í Rússlandi sem vilji einangra landið frá Evrópu. Khodorkovsky segir það mun vænlegri leið fyrir Evrópusambandið að aðstoða Úkraínu við að ná jafnvægi og takist það gætu áhrifin af því leitt til breytinga í Rússlandi.Hann bendir á að Pútín virðist ekki hafa eins sterk tök á aðskilnaðarsinnum í Úkraínu eins og áður var talið en á dögunum urðu þeir ekki við beiðni hans um að fresta atkvæðagreiðslu um aukna sjálfstjórn í austurhluta landsins. Því væri færi fyrir Vesturlönd að aðstoða stjórnvöld í Úkraínu við að koma á lögum og reglu í landinu og það myndi á móti draga úr völdum Pútíns á svæðinu. Með því að beita viðskiptaþvingunum væri hinsvegar aðeins verið að fylkja rússneskum almenningi að baki Pútín, sem hefur aldrei verið vinsælli , að því er kannanir gefa til kynna.
Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Innlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Samþykktu að víkja liðhlaupum úr Sjálfstæðisflokknum úr nefndum og ráðum Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Ekki hættur í Samfylkingu þótt hann bjóði fram fyrir Framsókn Innlent Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Innlent Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Erlent Fleiri fréttir Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Sjá meira