Rúm milljón manna flýr heimili sín í Suður-Súdan 30. mars 2014 11:44 vísir/afp
Rúm milljón manna hafa þurft að flýja heimili sín í Suður-Súdan vegna blóðugra átaka stríðandi fylkinga í landinu. Sameinuðu Þjóðirnar óttast að ástandið í landinu muni versna verulega á næstu mánuðum. Það sló í brýnu milli stjórnarhersins og fylgismanna fyrrverandi varaforseta í desember síðastliðnum. Kveikjan að átökunum er gömul deila mismunandi þjóðarbrota og yfirráð yfir Suður-Súdan. Á þessum stutta tíma hafa vel yfir átta hundruð þúsund manns hrakist á vergang innan landamæranna en um tvö hundruð og fimmtíu þúsund hafa beinlínis flúið til nágrannaríkja. Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir samstilltu átaki alþjóðasamfélagsins til að stemma stigu við áframhaldandi átökum í landinu og benda á að tæplega fimm milljónir manna þurfi á mannúðaraðstoð, matvælum og nauðþurftum að halda. Þar af eru 3,7 milljónir í bráðri þörf fyrir mataraðstoð. Það verður þó hægara sagt en gert að aðstoða íbúa Suður-Súdan, enda er landið afar afskekkt og strjálbýlt. Fregnir hafa borist af hrottalegum fjöldamorðum og óttast er að þúsundir hafi þegar látist í átökunum. Suður-Súdan varð sjálfstætt ríki árið 2011 og er nýjasta ríki heims en jafnframt eitt það fátækasta.
Mest lesið Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Innlent Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Innlent Fleiri fréttir Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Sjá meira