Erlent

Óeirðir í Brussel

Jakob Bjarnar skrifar
Mótmælin urðu róstursöm og slösuðust um fimmtíu manns í þeim.
Mótmælin urðu róstursöm og slösuðust um fimmtíu manns í þeim. ap
Belgíska lögreglan beitti táragasi og öflugum vatnsslöngum á mótmælendur í Brussel í gær.

Mótmælaganga um hundrað þúsund verkamanna, sem vilja mótmæla aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem lúta meðal annars að hækkun ellilífeyrisaldurs og launafrystingu endaði í miklum róstrum. Kveikt var í bílum og steinum var grýtt í lögregluna. Um fimmtíu mann slösuðust í átökunum. Verkalýðshreyfingar hafa boðað til aukinna aðgerða, en mótmælin eru þau mestu í Belgíu síðan í seinni heimstyrjöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×