Erlent

Utanríkisráðherra Lettlands kemur út úr skápnum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Rinkēvičs er eini opinberlega samkynhneigði ráðherrann í Lettlandi.
Rinkēvičs er eini opinberlega samkynhneigði ráðherrann í Lettlandi. Vísir / AFP
Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra Lettlands, kom í dag út úr skápnum. „Ég tilkynni hér með stoltur að ég er samkynhneigður,“ skrifaði ráðherrann á Twitter-síðuna sína í gær.

Samkvæmt bandarískri stofnun sem fylgist með réttindum samkynhneigðra er Lettland eitt af ríkjum Evrópu þar sem stjórnarskrá landsins bannar hjónabönd samkynhneigðra.

Lettneska þingið samþykkti í október að vinna með frumvarp sem bannar kynfræðslu í skólum þar sem hjónabönd samkynhneigðra og gagnkynhneigðra voru lögð að jöfnu. Þingið vinnur einnig að frumvarpi í rússneskum stíl um að banna „samkynhneigðan áróður“. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×