Akstursbann sádiarabískra kvenna senn á enda Atli Ísleifsson skrifar 7. nóvember 2014 23:08 Síðasta árið hefur hópur kvenna mótmælt akstursbanninu með því að taka myndir af sér undir stýri og birta á samfélagsmiðlum. Vísir/AFP
Æðsta trúarráð Sádi-Arabíu hyggst ráðleggja stjórnmálamönnum landsins að afnema banni við að konur landsins fái að aka bíl, þó með ákveðnum skilyrðum. Ráðið leggur til að einungis konur yfir þrítugt fái að aka bíl og að fenginni heimild frá karlmanni sem fylgist með akstrinum. Enn á eftir að greina opinberlega frá áætlununum en fréttaveitan AFP hefur eftir heimildarmönnum sínum að ákvörðunin hafi verið tekin í síðasta mánuði.Í frétt sænska ríkissjónvarpsins segir að 150 menn eigi sæti í ráðinu og séu allir sérvaldir af konungi landsins. Ráðið leggur til að konur fái nú að aka bíl milli klukkan sjö á morgnana til átta á kvöldin. Þá verði allar konur sem setjast undir stýri að vera klæddar á íhaldssaman hátt og vera ófarðaðar. Síðasta árið hefur hópur kvenna mótmælt akstursbanninu með því að taka myndir af sér undir stýri og birta á samfélagsmiðlum. Akstursbannið í Sádi-Arabíu er einstakt í heiminum og öfgaíhaldssamir prestar landsins hafa til þessa neitað að ræða málið, hvað þá afnema banninu. Hafa þeir sagt akstur kvenna hafa slæm áhrif á samfélagið og að hann kunni að eyðileggja eggjaframleiðslu konunnar. Samfélagið í Sádi-Arabíu er mjög íhaldssamt og þurfa konur að bera svartan kufl sem kallast Abaya til að hylja líkama sinn opinberlega. Auk þess þurfa þær að bera blæju sem hylur hár þeirra, axlir og hluta andlits. Á Vísindavefnum segir að þær megi sem fyrr segir ekki sjást opinberlega með öðrum körlum en eiginmönnum sínum eða skyldmennum. Skólar séu kynskiptir svo og vinnustaðir en atvinnuþátttaka sádískra kvenna er mjög lítil. Þær megi heldur ekki ferðast um á reiðhjólum.
Mest lesið Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veður Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Fleiri fréttir Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Sjá meira