Óhuggulegt klifurmyndband slær í gegn Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 19. febrúar 2014 14:42 Lögreglan í Sjanghæ hefur varað fólk við klifrinu.
Myndband af klifri tveggja ofurhuga á topp Sjanghæturnsins hefur vakið mikla athygli og hefur myndbandið verið spilað rúmlega 23 milljón sinnum á YouTube frá því það var birt fyrir viku.Sjanghæturninn er 121 hæða og 632 metra hár. Stefnt er á að ljúka byggingu hans á þessu ári og verður hann opnaður almenningi árið 2015. Þeir Vadim Makhorov og Vitaliy Raskalov klifruðu upp turninn á nýársdegi Kínverja, þann 31. janúar. Makhorov er 24 ára gamall Rússi en Raskalov er 21 árs Úkraínumaður. Þeir biðu með klifrið til miðnættis í von um að þá væru öryggisverðir sofnaðir. Það fylgir ekki sögunni hvort sú varð raunin, en félagarnir létu vaða og tók klifrið um sólarhring.Útsýnið úr turninum er svakalegt eins og sjá má í myndbandinu.Fyrstu 120 hæðirnar klifruðu þeir á tveimur klukkustundum en þeir þurftu að bíða í um það bil átján klukkutíma eftir betra veðri til að komast upp á topp. Mennirnir, sem sagðir eru gefa upp fölsk nöfn, segjast ekki vilja ögra yfirvöldum en lögreglan í Sjanghæ hefur engu að síður sent út tilkynningu þar sem þeir vara fólk við uppátækjum sem þessu. Nánar er fjallað um atvikið á vef The Economist en myndband af klifrinu má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Lofthræddir eru þó varaðir við að horfa á það.
Mest lesið „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ Innlent „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga Innlent Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Erlent Skjálfti við Húsavík Innlent Örlög Bayrou ráðast 8. september Erlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent „Það er sú aðgerð sem mun hraðast slá á þetta misræmi“ Innlent Fleiri fréttir Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Örlög Bayrou ráðast 8. september Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Sjá meira