Rússneski björninn sýnir klærnar á Norðurslóðum Kristján Már Unnarsson skrifar 2. nóvember 2014 08:45 Topol-kjarnorkuflauginni skotið á loft upp í gær á Arkhangels-svæðinu. Mynd/Rússneski herinn.
Rússneski herinn hefur rækilega minnt á kjarnorkumátt sinn á síðustu dögum með margvíslegum hætti á Norðurslóðum og raunar víðar um vestan-, norðan- og austanverða Evrópu. Þannig hafa þeir sýnt alla kjarnorkuþrennu sína; flugu flota kjarnorkusprengjuflugvéla, skutu kjarnaorkuflaug úr kjarnorkukafbáti og skutu kjarnorkuflaug á loft af landi. Síðast í gærmorgun skutu þeir svokölluðu Topol M-flugskeyti á loft frá Arkhangelsk-svæðinu en það getur borið kjarnorkusprengjur heimsálfa á milli. Nokkrum mínútum síðar hitti flugskeytið æfingaskotmark sitt á Kamsjatka-skaga á austurströnd Rússlands. Á miðvikudag skaut rússneskur kjarnorkukafbátur svokölluðu Bulava-flugskeyti á loft en hann var þá staddur í undirdjúpum Barentshafs. Kjarnorkusprengjuflugvélar af gerðinni TU-95, sem Íslendingar þekktu sem rússneska birni og Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli kynntist reglulega í kaldastríðinu, hafa einnig verið mikið á ferðinni síðustu daga. Fjórar slíkar vélar flugu á föstudag, í fylgd fjögurra Iljusjin-78 eldsneytisbirgðavéla, úr Barentshafi og með ströndum Noregs og fóru norskar orustuþotur frá Bodø til móts við þær. Fjallað er um málið í norskum miðlum.TU-95, oft kallaðar Björninn, á flugi á miðvikudag. Myndin var tekin úr breskri orustuþotu.Mynd/Breski flugherinnSamskonar floti átta rússneskra herflugvéla birtist einnig á miðvikudag, þær flugu inn á Norður-Atlantshaf, niður með ströndum Noregs og inn á Norðursjó. Tvær vélanna flugu alla leið suður undir lögsögu Portúgals áður en þær sneru aftur heim til Rússlands. Breski og portúgalski flugherinn sendu einnig orustuþotur til móts við flugflotann. Rússneski herinn hefur einnig sýnt mátt sinn og megin með samsvarandi hætti síðustu daga í Eystrasalti og Svartahafi og sagði NATO í fréttatilkynningu fyrir helgi að þetta stóraukna flug Rússa sýndi óvenju mikil umsvif í loftrými Evrópu. NATO sagði rússnesku flugvélarnar ekki hafa kynnt neinar flugáætlanir, þær höfðu engin radíósamskipti við flugstjórnarmiðstöðvar og voru með slökkt á ratarsvörum. Þetta skapaði hættu fyrir almenna flugumferð. Rússar reyna ekki með neinum hætti að fela þessi hernaðarumsvif sín gagnvart almenningi á Vesturlöndum. Þvert á móti hafa þeir birt myndbönd af eldflaugaskotunum á youtube. Hér má sjá Topol-flaugina og hér er Bulava-flaugin úr kafbátnum.Tupolev-sprengjuflugvélin tekur eldsneyti frá Iljusjin-vélinni úti fyrir ströndum Noregs.Mynd/Norski herinn.
Mest lesið Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Næsta gos gæti hafist á hverri stundu Innlent Fleiri fréttir Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Sjá meira