Fótbolti

Sló met Ryan Giggs

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ceni í leik með Sao Paulo.
Ceni í leik með Sao Paulo. Vísir/Getty
Rogerio Ceni er nafn sem fáir kannast við, en hann er markvörður Sao Paulo í brasilísku knattspyrnunni. Ceni sló á mánudag met Ryan Giggs.

Ryan Giggs átti metið yfir flesta sigra með félagsliði, en metið var í eigu Giggs sem hafði unnið 589 milli ársins 1990 og 2004. Eins og flestir vita hefur þó Giggs lagt skóna á hilluna.

Ceni gerði sér lítið fyrir og sló metið á mánudaginn með að leika með Sao Paulo í 3-0 sigri á Goais, en það var hans 590 sigur með félagsliði, meira en allir hinir.

Giggs náði sigrunum í 963 leikjum, en Ceni þurfti 1173 og bar hann fyrirliðabandið í 868 af þeim. Ceni á einnig magnaða tölfræði í markaskorum, en hann hefur skorað 123 mörk á sínum ferli úr aukaspyrnum og vítum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×