Íslendingar landa hval við hafnir Kanada - Grænfriðungar æfir Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 13. febrúar 2014 09:01 MYND/VANCOUVERSUN
Grænfriðungar segja það yfirgengilegt að hvölum sem Íslendingar og Japanir veiða sé umskipað við hafnir í Kanada en Kanada hefur samþykkt á alþjóðavettvangi að vernda hvali. The Vancouver Sun segir frá. Yfirvöld í Kanda segja að ekkert sé hægt að gera til þess að stöðva skiptin þrátt fyrir að landið hafi undirritað alþjóðlegan samning um verndun dýra- og gróðurríkis tegunda sem eru í útrýmingarhættu. En árið 1981 voru hvalir í útrýmingarhættu settir í flokk þeirra dýra samkvæmt samningnum sem hvaða mesta vernd þurfa. Ísland og Japan eru einnig aðilar að samningnum en samþykktu ekki breytingarnar sem gerðar voru árið 1981. Þessar þjóðir geta því veitt hvali og mega jafnvel nota kanadískar hafnir til þess að landa þeim að því er fram kemur í kanadísku fréttinni. Grænfriðungar segja að með því að leyfa þjóðunum að landa hvalnum við hafnir landsins séu Kanadamenn að samþykkja veiðarnar. „Það verður að banna þessa flutninga á hvölum í gegnum kanadískar hafnir,“ segir Sarah King, talsmaður Grænfriðunga. Fréttir af því að Íslendingar lönduðu hvölum við hafnir í Kanada hafa gengið fram af stjórnmálamönnum og umhverfissinnum, þar á meðal Grænfriðungum. Grænfriðungar segjast hafa frétt af því í síðustu viku að Íslendingar hefðu siglt með 12 gáma af hvalakjöti til Halifax. Þaðan eru gámarnir að sögn Grænfriðunga fluttir með lestum til Vancouver þaðan sem kjötið er flutt til Japans. Kanadamenn segjast ekki hafa nein úrræði til þess að stöðva þessa flutninga og þessir flutningar hafi ekki staðið yfir lengi og um sé að ræða fyrsta skipti sem Kanada tekur þátt í verslun með hvalkjöt.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Sjá meira