Úrslitum sjö landsleikja hagrætt í aðdraganda HM 2010 Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. júní 2014 09:13 Mynd tengist efni fréttar ekki beint. Vísir/getty
Fréttastofa Sky Sports greinir frá því í morgun að hún hafi undir höndum afrit af leynilegri skýrslu FIFA sem leiðir í ljós að úrslitum í a.m.k. sjö vináttulandsleikjum, sem spilaðir voru í aðdraganda HM 2010 í Suður-Afríku, var hagrætt.Wilson Raj Perumal, glæpamaður frá Singapúr sem stundar það að hagræða úrslitum leikja, á hlut í máli en hann notaði eitt fyrirtækja sinna til að útvega dómara í leikina sem um ræðir. Perumal, sem nú afplánar tveggja ára fangelsisvist í Finnlandi fyrir að hagræða úrslitum, heldur því fram að samtök sín hafi grætt milljónir punda á hverju ári með þessu svindli. Í maí 2010 skrifuðu singapúrsku samtök Perumals undir samning við knattspyrnusamband Suður-Afríku sem fól það í sér að þau myndu útvega dómara fyrir vináttulandsleiki í aðdraganda heimsmeistarakeppninnar. Dómararnir fengu svo allt að því átta milljónir króna fyrir að hagræða úrslitum leikjanna, að því fram kemur í frétt Sky Sports. Þeir sem rannsaka málið fyrir FIFA telja að fimm leikjum suðurafríska landslisðins hafi verið hagrætt. Það voru: 4-0 sigur á Taílandi, 1-1 jafntefli við Búlgaríu, 2-1 sigur á Kólumbíu, 5-1 sigur á Gvatemala og 1-0 sigur á Danmörku. Leikirnir fóru fram í maí og júní fyrir fjórum árum og sæta nú allir rannsókn. Aðrir leikir sem talið er að úrslitum hafi verið hagrætt í eru 3-1 sigur Nígeríu á Suður-Kóreu og markalaust jafntefli Japans gegn Simbabve. FIFA viðurkenndi í síðustu viku að nú þegar hefur verið reynt að hafa áhrif á úrslit leikja á HM í Brasilíu.
Fótbolti Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Fleiri fréttir Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Man. City - West Ham | Bláklæddir geta tyllt sér á toppinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Sjá meira