„Kominn tími til að brenna alpahúfuna og grafa bláa kjólinn“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 7. maí 2014 12:29 Greinin birtist í heild sinni í Vanity Fair á morgun. vísir/afp
Monica Lewinsky, fyrrverandi starfsmaður Hvíta hússins sem vakti heimsathygli fyrir ástarsamband sitt við Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur skrifað opinskáa grein í tímaritið Vanity Fair. Hún hefur hingað til sem minnst viljað tjá sig um sambandið. Í greininni segir hún frá upplifun sinni af hneykslismálinu sem upp komst um árið 1998. Hún segir að vissulega hafi Clinton misnotað vald sitt sem yfirmaður hennar, en sambandið hafi verið með samþykki beggja. „Það er kominn tími til að brenna alpahúfuna og grafa bláa kjólinn,“ segir Lewinsky í greininni, en hún sást gjarnan með alpahúfu á höfðinu þegar málið stóð sem hæst. Þá varð blár kjóll í hennar eigu umtalaður en á honum fannst lífsýni úr forsetanum. Lewinsky segir móður sína hafa haft miklar áhyggjur af sér á sínum tíma og óttast að dóttirin fyrirfæri sér vegna þeirrar niðurlægingar sem hún mátti þola. Hún segist þó aldrei hafa reynt að fyrirfara sér þó hún hafi glímt við sjálfsvígshugsanir um tíma. Hún segir umtalað sjálfsvíg Tylers Clementi hafa vakið sig til umhugsunar en hann náðist á myndband þar sem hann kyssti annan karlmann. Myndbandinu var dreift víða á netinu og í kjölfarið svipti hann sig lífi. „Ég taldi að hugsanlega gæti ég hjálpað öðrum í svipaðri stöðu með því að deila minni sögu,“ segir Lewinsky og bætir því við að árið 1998 hafi hún verið „niðurlægðasta manneskja heims“ og hugsanlega fyrsta fórnarlamb neteineltis á heimsvísu. Grein Lewinskys birtist í heild sinni í Vanity Fair á morgun.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira