Viðbragðsáætlun Kínverja við hugsanlegu falli Norður-Kóreu lekið Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 7. maí 2014 11:48 Kim Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu. vísir/afp
Viðbragðsáætlun Kínverja við hugsanlegu falli Alþýðulýðveldisins Norður-Kóreu hefur verið lekið til japanskra fjölmiðla. Bendir það til þess að ráðamenn í Peking hafi litla trú á langlífi stjórnar Kims Jong-Un. Samkvæmt áætluninni stendur meðal annars til að bæta eftirlit með landamærum Norður-Kóreu og Kína, og setja upp flóttamannabúðir í Kína komi til borgarastyrjaldar. Þá er það tekið fram að vernda verði norðurkóreska stjórnmálaleiðtoga og yfirmenn í hernum fyrir afskiptum erlendra herafla, en samkvæmt frétt Telegraph kemur fram að þar sé talið að átt sé við Bandaríkin. Telegraph hefur það eftir fréttastofu Kyodo News að leiðtogum Norður-Kóreu yrði haldið í sérstökum búðum þar sem hægt verði að fylgjast með þeim og einnig til þess að koma í veg fyrir að þeir taki þátt í aðgerðum sem ógnað gætu þjóðarhag Kínverja. Verði stjórnvöld í Norður-Kóreu hrakin frá völdum af óvinaher gæti það orðið til þess að milljónir manna reyndu að flýja land, en íbúar Norður-Kóreu eru um 25 milljónir. Öruggast væri að beina flóttamönnum yfir landamærin til Kína. Kínversk stjórnvöld hyggjast skoða bakgrunn flóttamannanna og meina þeim inngöngu í landið sem þeir telja hættulega. „Þetta undirstrikar það að lönd sem hafa hagsmuna að gæta í Norðaustur-Asíu þurfa að tala saman,“ segir Jun Okumura, prófessor í alþjóðamálum, í samtali við Telegraph. „Ég er viss um að Bandaríkin og Suður-Kórea hafa einnig gert viðbragðsáætlanir en þessi leki er nýr af nálinni.
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira