Erlent

Níu fórust í lestarslysi

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Lest Gorakhdam Express rakst harkalega á kyrrstæða flutningalest með hræðilegum afleiðingum.
Lest Gorakhdam Express rakst harkalega á kyrrstæða flutningalest með hræðilegum afleiðingum. Fréttablaðið/AFP
Níu manns fórust og 82 slösuðust þegar lest fór út af teinunum á norðanverðu Indlandi í gær.

Slysið varð þegar farþegalest með sex vagna rakst harkalega á kyrrstæða vöruflutningalest. Neyðaraðstoðarteymi mættu á staðinn og hófust handa við að losa fólk úr brakinu.

Óljóst er nákvæmlega hversu margir festust inni í vögnunum eftir slysið.

Narendra Modi, nýkjörinn forsætisráðherra Indlands, lýsti samúð sinni með fjölskyldum fórnarlambanna á samskiptamiðlinum Twitter í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×