Þjóðernissinnar allsráðandi í Ungverjalandi 7. apríl 2014 10:00
Ungverjar eru greinilega upp til hópa sáttir við þjóðernissinnann Viktor Orban, sem hefur verið forsætisráðherra Ungverjalands síðan 2010. Flokkur hans, Fidesz, vann yfirburðasigur í þingkosningum í gær, fékk 45 prósent atkvæða og hreinan þingmeirihluta, líklega 133 þingsæti af 199 og þar með rétt svo nægan þingstyrk til að breyta stjórnarskrá landsins að vild. Árangur Fidesz er í samræmi við skoðanakannanir en góður árangur annars þjóðernissinnaflokks, sem heitir Jobbikk, hefur komið nokkuð á óvart. Jobbikk fékk fjórðung atkvæða, en sá flokkur gengur enn lengra til hægri en Fidesz í þjóðernisstefnu sinni. Orban hefur ítrekað sætt gagnrýni, meðal annars af hálfu ráðamanna Evrópusambandsins og ýmissa mannréttindasamtaka, fyrir stjórnarskrárbreytingar og lagabreytingar sem sagðar eru hafa grafið undan lýðræði í landinu. Orban hefur sömuleiðis verið gagnrýndur fyrir lýðskrumsstefnu og flokkur hans hefur einnig sætt gagnrýni fyrir að hafa alið á andúð á bæði gyðingum og rómafólki. Þessi gagnrýni hefur greinilega engin áhrif haft á ungverska kjósendur. Orban sagði í ræðu sinni í gærkvöld, þar sem hann lýsti yfir sigri, að hvergi í aðildarlöndum ESB njóti einn stjórnmálaflokkur meira fylgis en Fidesz í Ungverjalandi. Orban lofaði í kosningabaráttunni að fjölga störfum í landinu, ganga hart fram gegn glæpum og efna til kosninga um aðildina að Evrópusambandinu. Ungverjaland gekk í Evrópusambandið árið 2004, en samskipti Orban við ESB hafa jafnan verið stirð. Fidesz náði góðum árangri í kosningum til Evrópuþingsins árið 2009, hlaut þá 56 prósent atkvæða með þeim árangri að 14 ar 22 þingsætum Ungverjalands komu í hans hlut. Fastlega er því búist við að Fidesz nái góðum árangri í Evrópuþingskosningunum sem haldnar verða í vor.
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira