Erlent

Avakov fullyrðir að 30 aðskilnaðarsinnar hafi fallið

Arsen Avakov, innanríkisráðherra Úkraínu.
Arsen Avakov, innanríkisráðherra Úkraínu. Vísir/AFP
Innanríkisráðherra Úkraínu, Arsen Avakov, fullyrðir á Facebook síðu sinni í dag að rúmlega þrjátíu aðskilnaðarsinnar hafi fallið í bardögum nálægt borginni Slaviansk í nótt.

Þetta hefur þó ekki verið staðfest en í gær réðust aðskilnaðarsinnar að úkraínskum hermönnum í nágrenni borgarinnar þar sem fjórir stjórnarhermenn féllu hið minnsta og tugir slösuðust.

Talsmenn aðskilnaðarsinna segjast einnig hafa misst fjóra í þeim bardögum en þeir hafa ekki tjáð sig um fullyrðingar ráðherrans hvað varðar mannfall eftir nóttina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×