Erlent

Enn ein hnífaárásin í Kína

Vísir/AFP
Að minnsta kosti sex særðust á lestarstöð í kínversku borginni Guangzhou í morgun þegar hópur manna réðst að fólki þar með hnífa á lofti. Lögreglan segist hafa skotið einn árásarmannanna til bana en hinna er leitað.

Ekki er ljóst hvað mönnunum gekk til en aðeins er vika liðin frá svipaðri árás annars staðar í landinu. Árásum sem þessum virðist því hafa fjölgað frá því í mars þegar tuttugu og níu voru drepnir með sama hætti á lestarstöðinni í Kunming.

Stjórnvöld kenna aðskilnaðarsinnum úr hópi Úígúra um voðaverkin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×