Stoltenberg nýr framkvæmdastjóri NATO Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. mars 2014 16:01 Jens Stoltenberg, næsti framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. vísir/ap
Jens Stoltenberg, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, verður næsti framkvæmdarstóri Atlantshafsbandalagsins og tekur við af Anders Fogh Rasmussen þann 1. október næstkomandi. Þetta var tilkynnt nú síðdegis. Stoltenberg mun hætta sem formaður norska verkamannaflokksins en hann hefur gengt formennsku frá árinu 2002.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra segir Stoltenberg vel að tilnefningunni kominn. Hann hafi mikla reynslu af alþjóðamálum og segir hann hafa vakið verðskuldaða athygli á alþjóðavettvangi á umliðnum árum. „Atlantshafsbandalagið er ein af meginstoðum varnarsamstarfs Íslands og það er okkur Íslendingum mikið hagsmunamál hver heldur þar um stjórnartaumana hverju sinni. Anders Fogh Rasmussen hefur reynst farsæll framkvæmdastjóri og ég hef fulla trú á að Jens Stoltenberg, annar norrænn leiðtogi, muni verða það einnig,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, sem upplýsti ríkisstjórnina í morgun um fyrirhugaða ákvörðun fastaráðsins.Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir að fyrir íslenska hagsmuni sé gott að nýr framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins þekki vel til áherslna Íslands í málefnum bandalagsins. „Norsk stjórnvöld hafa reynst áreiðanlegur og góður samstarfsaðili í öryggis- og varnarmálum á síðustu árum. Norðmenn hafa tekið reglulega þátt í loftrýmisgæslu á Íslandi frá árinu 2009 og leiddu nú síðast þátttöku Svía og Finna í loftvarnaræfingum á Íslandi í síðasta mánuði. Við studdum því heilshugar að Jens Stoltenberg yrði fyrir valinu sem næsti framkvæmdastjóri," segir Gunnar Bragi.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Sjá meira