Erlent

Drap sex Talíbana í einu skot

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Bresk leyniskytta drap sex menn með einu skoti, á 850 metra færi í desember í Afganistan. Breskir og afganskir hermenn voru í skotbardaga við 15 til 20 Talíbana í Kakaran héraði.

Richard Slack foringi bresku sveitarinnar sagði dagblaðinu Independent að einn Talíbananna hafi verið í sprengjuvesti og að leyniskyttan hafi borið kennsl á vestið þegar maðurinn hoppaði yfir skurð.

Þegar skyttan skaut á hann sprakk maðurinn og fimm aðrir menn létust í sprengingunni. „Það var þögn í talstöðinni og leyniskyttan sagði: Ég held ég hafi skotið sjálfsmorðssprengjumann, hinir dóu í sprengingunni.“ Annað sprengjuvesti með um 20 kílóum af sprengiefnum fannst á mönnunum.

Þessi sama leyniskytta skaut eitt sinn Talíbana á 1.340 metra færi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×