Erlent

Tengdasonur Bin Ladens dæmdur fyrir hryðjuverk

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Abu Ghaith var talsmaður al-Kaída í kjölfar árásanna á Tvíburaturnana í New York árið 2001.
Abu Ghaith var talsmaður al-Kaída í kjölfar árásanna á Tvíburaturnana í New York árið 2001.
Sulaiman Abu Ghaith, tengdasonur Osama Bin Laden, var í dag dæmdur fyrir hryðjuverk af bandarískum dómstólum. Hann var talsmaður hryðjuverkahreyfingarinnar al-Kaída í kjölfar árásanna á Tvíburaturnana í New York árið 2001.

Abu Ghaith var handsamaður í Jórdaníu í fyrra og fluttur til New York þar sem réttað var yfir honum. Hann á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi fyrir samsæri og liðsinni sitt við al-Kaída en hann er hæst setti meðlimur hreyfingarinnar sem réttað er yfir á bandarískri grundu frá árásunum.

Það tók kviðdóminn fimm klukkustundir að ákveða sig og var sakfellt í öllum þremur ákæruliðum.

Abu Ghaith, sem er giftur elstu dóttur Bin Ladens, sagði við réttarhöldin að tengdafaðir sinn hefði beðið sig að gerast talsmaður hreyfingarinnar daginn sem árásirnar voru gerðar á turnana.

Bin Laden var felldur af bandarískri hersveit á heimili sínu skammt utan við Islamabad, höfuðborg Pakistans, árið 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×