Siumut að ná sér á strik á lokasprettinum Guðsteinn Bjarnason skrifar 28. nóvember 2014 07:00 Aleqa Hammond, forsætisráðherra fráfarandi stjórnar, sagði af sér vegna spillingarmáls. Nordicphotos/AFP
Sósíaldemókrataflokkurinn Siumut hefur verið að vinna fylgi á síðustu dögum samkvæmt skoðanakönnunum, og virðist ætla að verða stærsti flokkurinn eftir kosningarnar í dag. Í skoðanakönnun frá því á miðvikudag er honum spáð 36,7 prósentum atkvæða, sem að vísu er töluvert fylgistap frá síðustu kosningum þegar flokkurinn fékk 43,2 prósent atkvæða. Siumut kæmist þar með aftur í lykilstöðu við stjórnarmyndun, þrátt fyrir að spillingarmál hafi valdið falli fráfarandi stjórnar flokksins. Vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit hefur að sama skapi dalað nokkuð í skoðanakosningum undanfarið, og stendur nú á svipuðum stað og í síðustu kosningum, með 34,5 prósent atkvæða. Aðeins hálft annað ár er frá því Grænlendingar kusu sér síðast þing. Aleqa Hammond, forsætisráðherra fráfarandi stjórnar og leiðtogi Siumut, neyddist til að segja af sér í byrjun október. Hún hafði þá viðurkennt að hafa notað opinbert fé til þess að greiða fyrir flugmiða og hótelgistingu fyrir sjálfa sig og fjölskyldu sína. Efnahagsvandræði og efnahagsóvissa hafa hrjáð Grænlendinga undanfarin misseri. Horfin að stóru leyti er sú mikla bjartsýni, sem ríkti fyrir fáum árum, um að Grænlendingar geti á skömmum tíma aflað sér nægilegra tekna til þess að standa sjálfir undir rekstri sjálfstæðs ríkis. Tekjurnar áttu að koma af námurekstri, með fjármögnun erlendra stórfyrirtækja. Þessu tengist eitt umdeildasta málið fyrir þessar kosningar, sem er bann við úrannámurekstri. Fráfarandi ríkisstjórn nam þetta bann úr gildi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Sjá meira