Danski þjóðarflokkurinn mælist stærstur í fyrsta sinn Atli Ísleifsson skrifar 28. nóvember 2014 11:15 Kristian Thulesen Dahl tók við leiðtogaembætti í flokknum af Piu Kjærsgaard árið 2011. Mynd/Wikipedia
Danski þjóðarflokkurinn mælist í fyrsta sinn stærsti flokkur Danmerkur samkvæmt nýrri skoðanakönnun Megafon. Flokkurinn mælist með 21,2 prósenta fylgi, en Jafnaðarmannaflokkurinn með 19,8 prósent og Venstre 20,9 prósent. Kosningar munu væntanlega fara fram í landinu eftir sjö eða átta mánuði og er líklegt að málefni innflytjenda verði ofarlega á baugi í kosningabaráttunni. Danski þjóðarflokkurinn er á móti straumi innflytjenda til Danmerkur og var stuðningsflokkur ríkisstjórnar borgaralegra flokka á árunum 2001 til 2011. Aukið fylgi bendir þó til að flokksformaðurinn Kristian Thulesen Dahl kunni að verða ráðherra eða jafnvel forsætisráðherra í borgaralegri ríkisstjórn að loknum kosningum. Thulesen Dahl hefur áður hafnað því að flokkurinn muni taka þátt í ríkisstjórn borgaraflokka og að hann kjósi frekar að standa utan ríkisstjórnar og þrýsta á stjórnarflokkana, fyrst og fremst þegar kemur að innflytjendamálum. Peter Lautrup Larsen, stjórnmálaskýrandi TV2, segir að verði þetta niðurstöður kosninga gæti reynst erfitt fyrir forystumenn Danska þjóðarflokksins að veigra sér undan ríkisstjórnarábyrgð. Danski þjóðarflokkurinn hlaut 12,3 prósent fylgi í þingkosningunum 2011, en hefur ítrekað mælst með um 20 prósent fylgi síðasta árið. Thulesen Dahl tók við leiðtogaembætti af Piu Kjærsgaard árið 2011.
Mest lesið Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Geimfari Apollo 13 látinn Erlent Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Innlent Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Erlent Fleiri fréttir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Sjá meira