Aldraður ökumaður keyrði á ólétta konu Samúel Karl Ólason skrifar 28. nóvember 2014 16:35 Talið er að Jodie hafi staðið á hækjum sér við vegginn þegar Allen keyrði á hana. Skjáskot
Ólétt kona sem stóð fyrir framan apótek í Pittsburgh í Bandaríkjunum lét lífið eftir að 88 ára gamall maður ók á hana. Hann ruglaðist á bensíngjöfinni og bremsunni, keyrði upp á gangstétt og klemmdi konuna upp við vegg. Konan lést en barnið lifði af. Jodie Guthrie var 30 ára gömul þegar þegar hún lést á miðvikudaginn. Ökumaðurinn ætlaði að leggja í stæði við apótekið en í stað þess að bremsa steig hann á bensíngjöfina. Drengurinn sem hefur fengið nafnið Trace Joseph var tekinn með keisaraskurði, en hann er í öndunarvél og er haldið í lágu hitastigi til að koma í veg fyrir heilaskemmdir. „Hann átti ekki að fæðast á þennan hátt. Við áttum að vera hamingjusöm,“ sagði faðir drengsins við Action News 4 í Pittsburgh. George Weatherwalk var á heimili hans og Jodie þegar honum var tilkynnt um slysið. „Ég gekk inn á sjúkrahúsið og þeir sögðu: Hvort viltu góðu eða slæmu fréttirnar? Um leið og þeir sögðu að sonur minn hefði lifað af, vissi ég að hún væri dáin.“ Hann sagðist einnig óska þess að fjölskylda ökumannsins eða læknar hefðu komið í veg fyrir að hann færi akandi um. Samkvæmt Action News 4 sýnir ökumaðurinn Allen Massie einkenni elliglapa. Samkvæmt fjölskyldu hans ætlaði hann út í búð fyrir viku síðan en endaði í öðru ríki Bandaríkjanna. Hann var yfirheyrður af lögreglu en hann á ekki ákæru yfir höfði sér. Vegfarendur sem urðu vitni að atvikinu reynd að fá Allen til að bakka en hann áttaði sig ekki á því hvað hefði gerst.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira