Skildi son sinn eftir í bíl í sjö tíma Samúel Karl Ólason skrifar 3. júlí 2014 21:58 Vísir/AP
Maður sem skildi 22 mánaða gamlan son sinn eftir í bíl á sólríkum degi, þar sem hann lést, mætti fyrir dómara í Bandaríkjunum í dag. Justin Ross Harris verður ákærður fyrir morð og grimmd gegn barni, en sonur hans lést eftir að hafa verið skilinn eftir í bíl í sjö tíma á meðan Justin var í vinnunni. Hitinn náði mest rúmum 33 gráðum á selsíus yfir daginn. Á meðan sonur hans kvaldist í bílnum var Justin í tölvusamskiptum við sex konur og meðal annars sendi hann þeim myndir af getnaðarlim sínum. Ein þeirra var sautján ára gömul.CNN segir frá því að Justin hafi yfirleitt farið með son sinn í daggæslu sem var í vinnu hans, en ekki þennan morgun. Þá á hann að hafa farið út í bíl með ljósaperur um daginn. Sjálfur segist hann hafa gleymt því að sonur hans væri í bílnum. Á leið heim úr vinnu keyrði hann inn á bílastæði og fór úr bílnum og bað um aðstoð. „Hvað hef ég gert?“ sagði hann. Vitni sögðu hann einnig hafa sagt: „Ég trúi ekki að þetta hafi gerst. Ég verð ásakaður um glæp.“ Eiginkona hans viðurkenndi fyrir lögreglu að þau hefðu flett upp á netinu hve heitur bíll þyrfti að verða svo barn gæti dáið. Þá skoðaði Justin heimasíðu undir nafninu „Barnlaus“ og las þar fjórar greinar. Fimm dögum áður en sonur hans lést, skoðaði Justin tvö myndbönd þar sem dýralæknir sýnir fram á hætturnar sem fylgja því að skilja einhvern í bíl á heitum degi. Verjandi Justin sagði hann hafa flett þessu upp af ótta við að slíkt gæti komið fyrir.
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Fleiri fréttir Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Sjá meira