Sleppt úr fangelsi eftir að hafa setið saklaus inni í 25 ár Samúel Karl Ólason skrifar 8. apríl 2014 21:01 Jonathan Fleming, faðmar móður sína eftir 25 ár í fangelsi. Vísir/AP „
Mér líður stórkostlega. Ég hafði alltaf trú og vissi að þessi dagur myndi á endanum renna upp,“ segir Jonathan Fleming. Honum var sleppt úr fangelsi í dag eftir að hafa setið inni fyrir morð í 25 ár. Þegar morðið átti sér stað var hann í Flórída, um 1.800 kílómetrum frá vettvangi glæpsins í New York. Saksóknarar ákváðu að taka málið aftur til skoðunar og þá fannst kvittun frá hóteli í Flórída og vitni bar vitnisburð sinn til baka. Þá stigu fram ný vitni sem sögðu annan mann bera ábyrgð á morðinu. Á sínum tíma sagðist Fleming hafa verið í Flórída þegar vinur hans, Darryl Rush var skotinn til bana, en vitni sagðist hafa séð hann skjóta Rush. Þó hann hafi lagt fram flugfarmiða og póstkort frá Flórída dugði það ekki til. Vitnið dró svo vitnisburð sinn til baka strax árið 1990 og sagðist hafa logið svo lögreglan myndi sleppa sér frá handtöku. Fleming tapaði þó áfrýjunum sínum. Verjendur hans báðu svo saksóknara New York borgar um að skoða málið að nýju í fyrra. Saksóknarar fundu vitni sem ekki hafði verið rætt við áður sem bentu á annan mann vegna morðsins. Einnig fannst kvittun frá hóteli í Flórída, tímasett fimm tímum áður en morðið átti sér stað. Lögreglumenn fundu kvittunina í vasa Fleming þegar hann var handtekinn árið 1989, en hún var aldrei lögð fram sem sönnunargagn. Patricia Fleming, móðir Jonathan, sagði AP fréttaveitunni að hún hafi alltaf vitað að hann hafi ekki framið morðið, því hún hafi verið með honum í Flórída. „Þegar þeir dæmdu son minn í minnst 25 ára fangelsi, hélt ég að ég myndi deyja.“ „Ég gafst þó aldrei upp því ég vissi að hann var saklaus.“
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Fleiri fréttir Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Sjá meira