Fann þriggja vikna dreng í kassa í Tansaníu Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. apríl 2014 11:58 mynd/helga
Helga Huld Halldórsdóttir, læknir, starfaði sem sjálfboðaliði á spítala í Vestur-Tansaníu árið 2011. Dag einn fann hún lítinn dreng ofan í kassa í fæðingarherbergi inni á spítalanum. Drengurinn var tæplega þriggja vikna gamall og hafði móðir hans yfirgefið hann. „Móðir hans hafði skilið hann eftir í strætó. Hún hafði beðið nágrannakonu sína um að halda á honum en fór og kom aldrei aftur,“ segir Helga. Drengurinn var vafinn í teppi og ofan í járnkassa og tók Helga í fyrstu ekki eftir honum.Lítil samúð með munaðarleysingjum Hún segir að mikið hafi verið að gera hjá hjúkrunarkonunum á spítalanum og því hafi þeim ekki gefist mikill tími til að hugsa um hann, bleyjuskiptingar og annað slíkt hafi fengið að mæta afgangi. „Umhugsunin er allt önnur en maður hefur vanist. Oft lá hann í sinni eigin ælu og pissi. Þær skiptu vissulega á honum, en ekki eins oft og tíðkast hér.“ Hún segir fólk hafa haft litla samúð með þessu litla barni. Menningin sé allt önnur og þar sé í raun ekki óalgengt að börn finnist úti eða á vergangi. „Manni finnst þetta voðaleg vanræksla og skilur ekki alveg hvernig er hægt að vera svona harðbrjósta.“Oliver litli.mynd/helgaÍhugaði að taka hann að sér Helga hugsaði um drenginn í þrjá mánuði og haf honum nafnið Oliver. „Ég tók hann oft með mér heim að vinnu lokinni, en fékk þó ekki að hafa hann á næturnar. Þeim fannst skrítið að ég vildi hafa hann hjá mér.“ Helga segir það sjaldgæft að munaðarlaus börn séu ættleidd á þessum stað og hafði hún því samband við SOS-barnaþorp á Íslandi. SOS á Íslandi hafði samband við SOS í Tansaníu og fundu fyrir hann heimili í höfuðborginni. Helga íhugaði að taka Oliver að sér, en aðstæður hennar á þeim tíma buðu ekki upp á það. Hún heldur þó enn sambandi við hann og fær hún reglulega sendar af honum myndir og er hún í dag styrktarforeldri hans. Hún segir Oliver vaxa og dafna vel hjá fjölskyldu sinni í barnaþorpinu Dar-es-Salaam. Þeir sem vilja leggja sitt af mörkum og gerast styrktarforeldrar geta skráð sig á heimasíðu SOS barnaþorpa.Oliver er þriggja ára gamall í dag. Hann vex og dafnar vel að sögn Helgu.mynd/helga
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira