Bandaríkjamenn geta ekki haldið áfram að „leika kúreka“ Bjarki Ármannsson skrifar 2. maí 2014 07:30 Félagar hins látna virða mínútu þögn fyrir minningarleik á miðvikudaginn. Vísir/AP
Faðir sautján ára skiptinema sem skotinn var til bana í Montana-ríki í Bandaríkjunum síðastliðinn sunnudag gagnrýnir mjög skotvopnamenningu þar í landi. Hann segir Bandaríkjamenn ekki geta haldið áfram að „leika kúreka“. Það er fréttaveitan AP sem greinir frá þessu. Diran Dede var Þjóðverji sem eytt hafði vetrinum við nám í bænum Missoula og átti að snúa heim til sín eftir einungis nokkrar vikur. Hann var skotinn í bílskúr manns að nafni Markus Kaarma sem hleypti af fjórum sinnum úr haglabyssu sinni þegar hann varð var við að Dede var þar inni. Ekki er víst hvað Dede var að gera á heimili Kaarma. „Mig grunaði aldrei að hér gætu allir drepið einhvern fyrir það eitt að stíga inn í bakgarð manns,“ sagði Celal Dede, faðir Dirans, við komu til Bandaríkjanna. Hann sagði að hann hefði aldrei leyft syni sínum að taka þátt í skiptináminu hefði hann vitað það. Á miðvikudagskvöld fór fram minningarleikur hjá fótboltaliði Dede í Hamborg, heimabæ hans. Hundruð manna mættu til að votta virðingu sína og héldu margir á myndum af hinum látna eða lögðu rósir á völlinn. Kaarma hefur nú verið ákærður fyrir morð. Hann heldur fram sakleysi sínu og segist hafa óttast um líf sitt.
Mest lesið Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Innlent Lést í sprengingunni Innlent Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Innlent Skammt stórra högga á milli Veður Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Veður Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent „Auðvitað mikið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Íhugar að draga úr hernaði í Íran Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Einn helsti samstarfsmaður Berlusconi látinn Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Sjá meira