Mikil reiði og sorg vegna námuslyss Guðsteinn Bjarnason skrifar 15. maí 2014 00:01 Tyrkneskir námuverkamenn syrgja félaga sína sem fórust þegar sprenging varð í kolanámu. Vísir/AP
Nærri 450 námuverkamenn höfðu í gær fundist á lífi eftir mikla sprengingu sem varð í kolanámu í borginni Soma í vestanverðu Tyrklandi á þriðjudag. Nærri 250 lík höfðu fundist og óttast var að um hundrað í viðbót hefðu látið lífið. Hundruð manna, bæði ættingjar þeirra sem fórust og námuverkamenn sem komust lífs af, söfnuðust saman í Soma í gær og beindist reiði þeirra að Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra og ríkisstjórn hans. Sumir hrópuðu að Erdogan væri morðingi og þjófur. Grjóti var kastað í lögregluna og einhverjir voru handteknir. Í Istanbúl var einnig efnt til mótmæla fyrir utan fyrirtækið sem rekur námuna. Þá safnaðist fólk einnig saman í höfuðborginni Ankara, en lögreglan greip þar inn í og rak fólkið burt. Nærri átta hundruð manns voru að vinna í námunni þegar sprengingin varð á þriðjudag. Þetta er versta námuslys í Tyrklandi frá árinu 1992 þegar sprenging varð í námu skammt frá hafnarborginni Zonguldak við Svartahafið, með þeim afleiðingum að 263 námuverkamenn létust. Tyrknesk stjórnvöld sögðu að síðast í mars á þessu ári hefðu yfirvöld farið yfir öryggismál í námunni. Ekkert hefði fundist sem ábótavant teldist. Erdogan forsætisráðherra lýsti í gær yfir þriggja daga þjóðarsorg. Hann frestaði jafnframt utanlandsför en hélt í staðinn til Soma að skoða vettvanginn og ræða við námuverkamenn og aðstandendur þeirra.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira